Skinfaxi - 01.03.2019, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI
Skinfaxi 3. tbl. 2019
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands
(UMFÍ), hefur komið út samfleytt síðan
árið 1909. Tímaritið dregur nafn sitt
af hestinum fljúgandi sem dró vagn
goðsagnaverunnar Dags er ók um
himinhvolfið í norrænum sagnaheimi.
RITSTJÓRI
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
ÁBYRGÐARMAÐUR
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.
RITNEFND
Gunnar Gunnarsson formaður, Eiður
Andri Guðlaugsson, Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir
og Örn Guðnason.
PRENTUN
Prentmet Oddi.
LJÓSMYNDIR
Ívar Sæland, Haraldur Jónasson,
Gunnar Gunnarsson, Hafsteinn Snær
Þorsteinsson, Jón Aðalsteinn Berg-
sveinsson, Ólafur Þór Jónsson, Oscar
Rybinski, Sabína Steinunn Halldórs-
dóttir, Ágúst Atlason o.fl.
UMBROT OG HÖNNUN
Indígó.
PRÓFARKALESTUR
Helgi Magnússon.
AUGLÝSINGAR
Styrktarsöfnun.
FORSÍÐUMYND
Á myndinni er Veiga Grétarsdóttir,
formaður Siglingaklúbbsins Sæfara.
Myndina tók Ágúst Atlason, ljósmynd-
ari á Ísafirði, á Arnarnesi, við mynni
Skutulsfjarðar.
STJÓRN UMFÍ
Haukur Valtýsson, formaður, Ragnheiður
Högnadóttir, varaformaður, Sigurður
Óskar Jónsson, ritari, Guðmundur Sig-
urbergsson, gjaldkeri, Gunnar Gunnars-
son, meðstjórnandi, Jóhann Steinar
Ingimundarson, meðstjórnandi, og
Gunnar Þór Gestsson, meðstjórnandi.
VARASTJÓRN UMFÍ
Hallbera Eiríksdóttir, Lárus B. Lárusson,
Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir og
Gissur Jónsson.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík,
sími: 568 2929.
umfi@umfi.is
www.umfi.is
STARFSFÓLK UMFÍ
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
kynningarfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi
og framkvæmdastjóri Landsmóta (með
aðsetur á Sauðárkróki), Sabína Stein-
unn Halldórsdóttir, landsfulltrúi og
verkefnastjóri, Ragnheiður Sigurðar-
dóttir, landsfulltrúi og verkefnastjóri, og
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
UMFÍ
Ungmennafélag Íslands, skammstafað
UMFÍ, er landssamband ungmenna-
félaga á Íslandi. UMFÍ var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Sambandsaðilar UMFÍ eru 28 talsins.
Í hreyfingunni eru nú um 300.000
félagar í rúmlega 400 ungmenna- og
íþróttafélögum um land allt.
P ílukastfélag Fjarðabyggð-
ar var stofnað í Neskaup-
stað nú í desember. For-
sprakki félagsins var bú-
inn að ganga lengi með þá hug-
mynd í maganum að stofna pílu-
kastfélag. Draumurinn varð að
veruleika á Landsmóti UMFÍ 50+.
„Ég spilaði pílu þegar ég bjó
fyrir sunnan og hef lengi haft
áhuga á því að stofna pílukast-
félag hér á Norðfirði. En ég fann
ekkert húsnæði sem hentaði. Eft-
ir að Landsmót UMFÍ 50+ var
haldið í bænum í sumar fóru mál-
in á fulla ferð,” segir Friðrik Krist-
insson sem þekktur er á Norð-
firði og víðar sem Kiddi rokk.
Pílukast var ein af greinunum
sem boðið var upp á á Lands-
móti UMFÍ 50+ sem fram fór í
Neskaupstað í júní 2019. Bæði
var keppt í greininni og áhuga-
sömum boðið að prófa og læra
að skjóta í mark. Friðrik keppti
á mótinu ásamt tengdasyni sín-
um og lentu þeir í 2. og 3. sæti
í flokki 49 ára og yngri.
Fengum aðstöðu í
Gömlu ræktinni
En það sem meira var: Á mótinu
hitti Friðrik Ingibjörgu Magnús-
dóttur frá Pílukastsambandi
Íslands sem sá um pílukeppnina.
Málin tóku að hreyfast hratt eftir
það. „Sparkið kom eftir fund okk-
ar Ingibjargar. Hún greip hug-
myndina á lofti og ræddi málið
við íþrótta- og tómstundafulltrúa
Fjarðabyggðar. Upp úr því feng-
um við aðstöðu í Gömlu ræktinni
svokölluðu, í íþróttahúsi bæjarins.
Þar er geymslu- og lyftinga-
aðstaða iðkenda íþróttafélaga
Austfirðingar með pílu á lofti
Boðið hefur verið upp á keppni í pílukasti á mótum UMFÍ í gegnum tíðina.
Hér eru ofurkátir þátttakendur á Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði
um verslunarmannahelgina 2019.
Friðrik Kristinsson.
sem eru með æfingar í húsinu.
Þar erum við búin að setja upp
þrjú spjöld og erum að kasta,“
segir Friðrik.
Friðrik hefur fram til þessa
staðið fyrir æfingum í pílukasti
eftir vinnu.
„Við erum þetta 4–7 sem hitt-
umst og köstum. En fólk hefur
áhuga. Hann jókst mikið eftir að
Stöð 2 hóf að sýna frá Heims-
meistaramótinu í pílukasti. Marg-
ir eru með pílukastspjald inni í
skúr og fara þangað til að spila.
Ýmsir hafa því viðrað áhuga á
að gera þetta að rútínu, með
skipulögðum hætti. Við ætlum
að gera það hjá Pílukastfélagi
Mig langar til að
stíla inn á unglingana,
enda hef ég fundið
áhuga hjá þeim
sem finna sig ekki
í öðrum íþróttum.
Fjarðabyggðar. Mig langar til
að stíla inn á unglingana, enda
hef ég fundið áhuga hjá þeim
sem finna sig ekki í öðrum íþrótt-
um. Þar fyrir utan væri gaman
að geta efnt til pílukasts á fleiri
stöðum í Fjarðabyggð,“ segir
Friðrik.