Skinfaxi - 01.03.2019, Side 8
8 SKINFAXI
„Maður er alltaf að skrifa um það sem maður þekkir og þeir sem
þekkja rithöfunda verða að sætta sig við að þeir lenda oft í hlutverk-
um í bókum,“ segir rithöfundurinn og kennarinn Hjalti Halldórsson.
Hjalti hefur skrifað bókina Ys og þys út af öllu. Þetta er þriðja bók
hans sem ætluð er börnum og unglingum. Bókin fjallar um vináttu
þeirra Guðrúnar, Kjartans og Bolla sem eru á skólaferðalagi og
fara í Ungmennabúðirnar að Laugum í Sælingsdal. Í sögunni kemur
fyrir Dani sem gæti hæglega verið tvíburabróðir Jörgens Nilssons,
frístundaleiðbeinanda og snillings í Ungmennabúðunum.
Hjalti er kennari við Langholtsskóla og kom með hópi nemenda
skólans sem dvaldi í Ungmennabúðunum á Laugarvatni í desember.
Að sjálfsögðu færði hann þeim Önnu Margréti Tómasdóttur, for-
stöðumanni búðanna, og Jörgen eintak af bók inni, sem sló auð-
vitað strax í gegn.
Hjalti hefur sjálfur komið einu sinni áður með skólahóp í Ung-
mennabúðirnar þegar þær voru að Laugum og þekkir staðhætti
þar. Annar sona hans fór þangað sömuleiðis og honum líkaði vel.
„Það er gott að hafa komið í Ungmennabúðirnar. Ég veit hvaða
leiki er farið í, hvernig skipulagið virkar og hef þurft að glíma við
ælupestir og fleiri uppákomur,“ segir hann.
Fornar sögur í nýju umhverfi
Þetta er þriðja bók Hjalta en í þeim öllum notar hann Íslendingasög-
ur sem innblástur og færir sögusviðið til nútímans. Bæk urnar fjalla
allar um börn og unglinga. Þeir sem hafa lesið Lax dælu ættu auð-
vitað að kannast við nöfn aðalsöguhetjanna í Ys og þys út af öllu.
Enginn tilviljun réð því heldur að ævintýrin gerast í Ungmennabúð-
um UMFÍ í Sælingsdal en að bænum Hvammi í Dölum bjó land-
námskonan Auður djúpúðga Ketilsdóttir sem Laxdæla fjallar um.
Hjalti hefur skrifað eina bók á ári síðan árið 2017. Þær eru allar
innblásnar af Íslendingasögunum, tvær hinar fyrri af bæði Egils
sögu og Grettis sögu.
En er nauðsynlegt að hafa lesið Íslendingasögurnar til að njóta
sagnanna?
Hjalti segir svo ekki vera. „Þeir sem þekkja sögurnar sjá auð vitað
tengingarnar. En þeir sem hafa ekki gert það geta lesið bækurnar
eins og hverja aðra sögu,“ segir hann.
Nú er hann kominn í fyrsta sinn að Laugarvatni. Og nú, þegar hann
hefur komið bæði að Laugum og Laugarvatni, hvernig finnst honum?
„Starfið er alveg frábært og krakkarnir þroskast með hverri klukku-
stund,“ segir hann.
Laugarvatn og reyndar Bláskógabyggð er sneisafull af Íslands-
sögu, svo að segja hver þúfa.
Er Hjalti með nýja bók í maganum sem gerist í ungmenna búð un-
um á Laugarvatni?
„Það er aldrei að vita,“ svarar hann.
VINÁTTA, HREKKIR OG HEFND
Í UNGMENNABÚÐUM UMFÍ
Hjalti Halldórsson með bók sína Ys og þys út af öllu.
Hjalti Halldórsson, kennari við Langholtsskóla, kom í annað sinn í Ungmennabúðir
UMFÍ á þessu ári. Hann hefur skrifað um búðirnar fyrir börn og unglinga.
Hjalti Halldórsson ásamt Önnu Margréti Tómasdóttur, forstöðumanni
Ungmennabúða UMFÍ, og Jörgen Nilsson, frístundaleiðbeinanda.