Skinfaxi - 01.03.2019, Síða 13
SKINFAXI 13
hefur nú þegar nýst okkur vel. Íþrótta- og æsku-
lýðshreyfingin er á ákveðnum tímamótum breyt-
inga og kallað hefur verið eftir framtíðarsýn
fyrir íþróttahéruðin. Aðild okkar að íþróttabanda-
lögunum er vonandi jákvætt skref í þeirri vinnu.
Það er íþróttahreyfingunni líka mikilvægt að rækta
forvarnastarf sitt og halda utan um þá sem vilja vera með án þess
að verða endilega afreksfólk í íþróttum. Þar tel ég að UMFÍ geti
leikið stórt hlutverk í starfsemi okkar.“
Hvernig gagnast félagsmönnum og iðkendum að vera innan UMFÍ?
„Tíminn mun leiða í ljós hvernig það mun nýtast félagsmönnum og
iðkendum að tilheyra UMFÍ. Við höfum miklar væntingar og það er
okkar að tryggja að fulltrúar íþróttafélaganna viti hvað það er sem
UMFÍ býður upp á. Unglingalandsmót UMFÍ opnar marga nýja
möguleika á að verða stærra og fjölmennara en nokkru sinni áður
og það hefur frábært forvarnagildi fyrir börn og unglinga. Fyrr-
nefndur Æskulýðsvettvangur getur líka nýst félögum afar vel þegar
kemur að sameiginlegum hagsmunamálum barna og unglinga.
Þeir verkferlar og viðbragðsáætlanir sem þar er að finna eru mikil-
væg verkfæri í dag, sem mörg félög hefur vantað.“
„Það er mjög gott að vera kom-
inn inn í UMFÍ enda höfum við
lengi talið það heillavænlegt að
bandalögin tilheyri UMFÍ-fjöl-
skyldunni. Við teljum því inn-
gönguna jákvætt skref fyrir
íþróttahreyfinguna og við hjá
ÍBA hlökkum til náins samstarfs
með UMFÍ í framtíðinni,“ segir
Geir Kristinn Aðalsteinsson,
formaður Íþróttabandalags
Akureyrar.
Hverjir eru kostirnir fyrir ÍBA
ogUMFÍ, að þínu mati?
„Kostirnir eru ótvíræðir í huga okkar. ÍBA horfir til framtíðar með
þessari inngöngu. Við eigum það sameiginlega markmið að stuðla
að betra og faglegra starfi í íþróttamálum á landinu. Nú getum við
sameinað krafta okkar og lært hvort af öðru til betri árangurs. Ég er
sem dæmi afar hrifinn af Æskulýðsvettvanginum sem UMFÍ er aðili
að. Þar hefur verið unnin mikil vinna og efnið, sem þar er að finna,
JÁKVÆTT SKREF FYRIR ÍÞRÓTTAHREYFINGUNA
Geir Kristinn Aðalsteins-
son, formaður ÍBA.