Skinfaxi - 01.03.2019, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI
„Það er einstaklega góð tilfinning
fyrir ÍBR að vera komið inn í UMFÍ
enda höfum við unnið af krafti
að þessu síðustu 20 ár. Ég er
sérstaklega ánægður með að
við einbeittum okkur að því
hvernig við getum unnið betur
fyrir iðkendur og félagsmenn í
UMFÍ, bæði í Reykjavík og um
land allt,“ segir Ingvar Sverris-
son, formaður ÍBR.
Hann segir að með sameiningu
sé hægt að ná mun betri árangri
og að UMFÍ verði enn sterkara
með aðkomu íþróttabandalaganna.
„Við lögðum umræður um peningamál og völd til hliðar en það
eru einmitt slíkir þættir sem geta tafið fyrir nauðsynlegum framför-
um. Markmiðið er skýrt. Við ætlum okkur að ná í meiri peninga inn
„Tilfinningin að vera komin í
UMFÍ er mjög góð. Ákvörðunin
um að gerast aðili að UMFÍ fór í
gegnum stjórnarskipti hjá ÍA og
er því ljóst að allir eru sammála
um mikilvægi þess að að vinna
að framtíðarsýn fyrir íþrótta-
héröðin og finna leiðir til að
styðja betur við starf í nær-
umhverfi barna og unglinga
þannig að starf í íþróttum verði
áfram jafnmikilvægur þáttur í
daglegu lífi allra,“ segir Marella
Steinsdóttir, formaður Íþrótta-
bandalags Akranes.
Hverjir eru kostirnir fyrir ÍA og UMFÍ, að þínu mati?
„UMFÍ hefur lengi verið leiðandi í heilsueflingu þar sem ÍA hefur
lengi gegnt stóru hlutverki á Akranesi og leiðir UMFÍ og ÍA hafa
Sú nýbreytni var samþykkt á sambandsþingi UMFÍ að ung-
mennaráð UMFÍ fái áheyrnarfulltrúa í stjórn UMFÍ. Áheyrn-
arfulltrúinn hefur málfrelsi og tillögurétt. Ungmennaráð
UMFÍ átti tillöguna og bar Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir hana
upp. Elísabet, sem sæti átti í ungmennaráðinu, var jafnframt
yngsti þingfulltrúinn á sambandsþinginu og var undir lok þess
kosin í varastjórn UMFÍ.
Fulltrúi ungmennaráðs, sem hefur rétt til setu á fundum stjórnar
UMFÍ, er Ástþór Jón Tryggvason, nýkjörinn formaður ráðsins.
UMFÍ fagnar því að þingfulltrúar hafi ákveðið að veita áfram
ungu fólki brautargengi innan ungmennafélagshreyfingarinnar
og auka aðkomu þess í stjórn UMFÍ.
í hreyfinguna til hagsbóta fyrir alla sem
standa í þessu mikilvæga starfi um allt land.“
Ingvar segir ótal kosti við það að ÍBR
hafi gerst sambandsaðili UMFÍ.
„Fjölmörg verkefni, sem er verið að
vinna af miklum krafti og mikil þekking
hefur orðið til í, munu nýtast í starfi okkar
og vonandi getum við líka bætt einhverju við. Hér er ég að tala
um starf í nærumhverfinu þar sem íþróttahéröð og íþróttafélög
eru grunnur að frábærum árangri sem náðst hefur í forvörnum og
þátttöku. Þar er ég líka að tala um siðamál og jafnréttismál, að
ekki sé talað um nýjungar á borð við rafíþróttir.“
Hvernig gagnast félagsmönnum og iðkendum að vera innan UMFÍ?
„Við eigum auðvitað eftir að fara af meiri krafti í að vinna beint
með félagsmönnum og iðkendum og kynna fyrir þeim UMFÍ og
starfið sem þar er unnið en ég held að meiri fjölbreytni og breið-
ara framboð muni nýtast í félagsstarfinu.“
UMFÍ VERÐUR ENN STERKARA
Ingvar Sverrisson,
formaður ÍBR.
SAMBANDSÞING UMFÍ 2019
t.d. legið saman við skipulagningu og framkvæmd
Hreyfiviku. Þá hefur íþróttastarf á landinu
þróast í þá átt að UMFÍ sér um grasrótina og
æskuna á meðan ÍSÍ sér meira um stjórnsýslu
og samskipti við sérsambönd og því sjáum það
sem mikinn kost að vera innan raða UMFÍ.“
Hvernig gagnast félagsmönnum og iðkendum að vera innan UMFÍ?
„Markmið sameiningarinnar hjá báðum aðilum er að sameina
krafta sína til að efla íþrótta- og æskulýðsstarf í landinu á vettvangi
UMFÍ. Ástæðan fyrir því að ÍA sótti um og var í hópi fyrstu íþrótta-
bandalaga sem fengu aðild að UMFÍ er að landslagið í íþróttamál-
um er að breytast. Þróunin hefur orðið sú að héraðssambönd og
íþróttabandalög eiga mörg sameiginleg hagsmunamál á sviði
íþróttamála og skipulagi íþróttastarfs. Það er mat ÍA að aðild að
UMFÍ muni bæta íþróttastarf á Akranesi. Það opnast vettvangur fyr-
ir þjálfara og forsvarsmenn til að leita sér þekkingar innan UMFÍ, og
hvetur aðildarfélög ÍA til að taka þátt í viðburðum UMFÍ, s.s. Ungl-
ingalandsmótum og síðast en ekki síst, eflir aðild ÍA starf UMFÍ.
AÐILD AÐ UMFÍ MUN BÆTA ÍÞRÓTTASTARF Á AKRANESI
Marella Steinsdóttir,
formaður ÍA.
Ungmennaráð fær áheyrnarfulltrúa í stjórn UMFÍ