Skinfaxi - 01.03.2019, Blaðsíða 15
SKINFAXI 15
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður UMFÍ,
var á sambandsþinginu gerð að heiðursfélaga UMFÍ. Við
það tækifæri var hún sæmd heiðurskrossi hreyfingarinn-
ar. Heiðursfélagi er æðsta viðurkenning ungmennafélagshreyf-
ingarinnar. Samkvæmt reglugerð skal aðeins tilnefna þá til
heiðursfélaga sem hafa unnið áratuga heillaríkt starf fyrir ung-
mennafélagshreyfinguna og gegnt veigamiklu ábyrgðarhlutverki
fyrir hana.
Helga Guðrún sat í stjórn UMFÍ í 18 ár. Hún kom fyrst inn í
stjórnina árið 1997 og sat í varastjórn fyrsta kjörtímabilið. Hún
var meðstjórnandi á árunum 1999–2001 og varaformaður á
árunum 2001–2007. Helga Guðrún var kjörin formaður UMFÍ
2007, sama ár og UMFÍ fagnaði aldarafmæli, og gegndi því
embætti í átta ár eða til ársins 2015.
Helga Guðrún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu 1. janúar 2016, fyrir störf á vettvangi íþrótta- og æsku-
lýðsstarfs.
Helga Guðrún gerð
að heiðursfélaga UMFÍ
Helga Guðrún er fyrsta konan
til að verða heiðursfélagi
UMFÍ og er hún komin í
fámennan hóp ungmenna-
félaga. Aðeins 22 hafa hlotið
þann heiður og gerðist það
síðast fyrir átta árum. Viður-
kenningin var fyrst veitt glímu-
kónginum Jóhannesi Jósefs-
vogir@vogir.is - 433-2202
Við eigum vogina fyrir þig!
Allar vogir fyrir iðnaðinn.
syni árið 1927 en hann var einn
af stofnendum UMFÍ. Jóhannes
var í tvígang heiðraður með
þessum hætti.
Hér til hliðar eru heiðursfélagar
UMFÍ ásamt árunum þegar þeir
hlutu þá viðurkenningu:
Jóhannes Jósefsson 1927/1957
Þórhallur Björnsson 1927
Helgi Valtýsson 1927/1957
Guðmundur Jónsson frá Mosdal
1933
Vigfús Guðmundsson 1940
Björn Guðmundsson 1943
Björn Jakobsson 1946
Bernharð Stefánsson 1957
Guðbrandur Magnússon 1957
Jón Helgason 1957
Anders Skåsheim 1957
Fáir hampa heiðrinum Eiríkur J. Eiríksson 1969
Sigurður Greipsson 1969
Skúli Þorsteinsson 1971
Þorsteinn Einarsson 1982
Hafsteinn Þorvaldsson 1987
Guðjón Ingimundarson
1987
Sigurður Geirdal 1993
Pálmi S. Gíslason 1997
Þórir Jónsson 2005
Björn B. Jónsson 2011
Helga G. Guðjónsd. 2019
Helga Guðrún ásamt Hauki Valtýssyni, formanni UMFÍ.