Skinfaxi - 01.03.2019, Síða 17
SKINFAXI 17
Fjöldi gesta steig í pontu við setningu sambandsþings UMFÍ.
Einn þeirra var Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna-
málaráðherra, en hann hélt þrusuræðu um UMFÍ og hrósaði
verkefnum hreyfingarinnar, sérstaklega Unglingalandsmóti
UMFÍ, verkefninu Vertu með og ungmennaráðstefnunni Ungt fólk
og lýðræði sem ungmennaráð UMFÍ skipuleggur.
Ásmundur þekkir ágætlega til starfs ungmennafélaga en hann
hefur unnið fyrir UDN og síðustu ár fyrir UMSB, ætíð í sjálfboðavinnu.
Hann var jafnframt gestur á síðasta Unglingalandsmóti UMFÍ sem
fram fór á Höfn í Hornafirði. Þar tók hann virkan þátt með tveimur
dætra sinna og var liðsstjóri körfuboltaliðs.
Ásmundur sagði í ræðu sinni á sambandsþinginu stjórnvöld vinna
að því, þvert á ráðuneyti og stjórnmálaflokka, að endurskoða alla
þjónustu við börn og ungmenni á Íslandi. „Eitt af því sem hefur komið
upp í þeirri vinnu er að við þurfum að tengja ungmennafélagshreyf-
inguna og íþróttastarfið miklu sterkar inn í þá vinnu,“ sagði hann og
lagði ríka áherslu á mikilvægi skipulagðs íþrótta- og æskulýðsstarfs.
Að mati hans á starf ungmenna- og íþróttafélaga að vera hluti af
uppeldisstofnunum samfélagsins, liður í uppbyggingu nærsamfélags-
ins og að vera einn af lykilþáttum samfélagsins sem ýtir undir mikil-
væga heilsueflingu og menningarstarfsemi.
Vill stíga stærri skref
Ásmundur sagðist jafnframt sjá fyrir sér mun þéttara samstarf stjórn-
valda í þeim verkefnum sem snúa að þátttöku barna og ungmenna
af erlendum uppruna í skipulögðu tómstundastarfi.
„Það hefur komið skýrt fram að þátttaka í íþrótta- og æskulýðsstarfi
getur og hefur margvísleg jákvæð áhrif á líkamlega, andlega og
félagslega heilsu þeirra sem taka þátt. Þátttaka í slíku skipulögðu
starfi ýtir auk þess undir þá tilfinningu að tilheyra og taka þátt,“
sagði hann og hrósaði sérstaklega verkefninu Vertu með en félags-
málaráðuneytið styrkti það árið 2018. Markmið verkefnisins er að
auka þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipu-
Íþróttahreyfingin fái meira vægi
lögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi með það að markmiði að styrkja
þau sem einstaklinga og efla þau til þátttöku í samfélaginu.
„Við erum búin að skoða það í ráðuneytinu, vegna aukinnar
áherslu á málefni barna, hvort við getum ekki stigið enn stærri skref
þegar kemur að þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna
í skipulögðu tómstundastarfi. Það er gríðarlega mikilvægt að tryggja
þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu, ekki bara þeim til gagns
heldur samfélaginu í heild sinni,“ sagði Ásmundur Einar.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráð-
herra, ávarpar sambandsþing UMFÍ 2019.
Þau Örn Guðnason og Hrönn Jónsdóttir voru sæmd gull-
merki UMFÍ á sambandsþinginu. Þau höfðu bæði setið í
stjórn UMFÍ en gáfu ekki kost á sér áfram. Örn hefur setið
samtals tíu ár í stjórn UMFÍ og verið varaformaður UMFÍ síðast-
liðin fjögur ár. Hrönn hefur verið ritari í sex ár. Hrönn er 33 ára
og á meðal yngstu ungmennafélaga sem hlotið hafa gullmerki
Örn og Hrönn sæmd gullmerki UMFÍ
UMFÍ í rúmlega 110 ára sögu ungmennafélagshreyfingarinnar.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, afhenti þeim Erni og Hrönn
viðurkenninguna.
„Ég færi Erni og Hrönn þakkir ungmennafélagshreyfingar-
innar og tel að leitun sé að fólki sem sé jafnmiklir ungmenna-
félagar og þau,“ sagði hann við afhendinguna.
ÍÞRÓTTA-
VEISLA UMFÍ
26. – 28. júní
UNGLINGA-
LANDSMÓT
UMFÍ
31. júlí – 2. ág.
LANDSMÓT
UMFÍ 50+
19. – 22. júní
UNGT FÓLK
OG LÝÐRÆÐI
1. – 3. apríl
SAMBANDS-
RÁÐSFUNDUR
október 2020
HREYFIVIKA
UMFÍ
25. – 31. maí
FRÆÐSLU-
OG VERKEFNA-
SJÓÐUR
1. apríl og
1. október
UMHVERFIS-
SJÓÐUR
15. apríl
LÝÐHÁSKÓLA-
STYRKIR
10. janúar
VERTU MEÐ
UMFÍ 2020