Skinfaxi - 01.03.2019, Blaðsíða 21
SKINFAXI 21
Í tilefni af undirritun viljayfirlýsingarinnar hélt Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir ráðherra skörulegt erindi um stöðu félagasamtaka
og mikilvægi samkomulagsins til að efla félagslega nýsköpun.
Sagði hún að það geti dregið úr kostnaði hins opinbera, þá helst í
heilbrigðis- og velferðarmálum.
„Þetta eru þung kerfi sem kosta mikla fjármuni og þau munu ekki
kosta minna í framtíðinni. Við greinumst nú fyrr með sjúkdóma, lifum
lengur með þá, ný lyf eru dýrari, við erum að eldast og getum ekki
fjárfest bara í steypu, það er að segja í hjúkrunarrýmum fyrir allt
þetta fólk. Það ríkir um það samfélagsleg sátt að þessi kerfi séu opin
fyrir alla, óháð því hvort þeir hafi fjárhagslega burði til að borga
fyrir þau. Ef okkur tekst ekki að stórauka nýsköpun í þessum kerfum
er ég ansi hrædd um að ég muni lifa þá tíma þegar við munum
klessa á vegg og sagt verður: Nei, nú er peningurinn búinn. Nú er
þetta ósjálfbært kerfi sem við getum ekki fjármagnað. Ég hef mikla
trú á því að við getum stóraukið nýsköpun í þessum kerfum, sem
breyta muni að einhverju leyti starfsumhverfinu fyrir þá sem starfa í
þessum geirum. En þeim fylgja líka mikil tækifæri. Ég held að þau
opni áhuga fleira fólks til að stíga inn á þennan vettvang og það
bæti sömuleiðis þjónustuna fyrir þá sem hana þurfa að nýta, sem
erum við öll, einhvern tíma kemur að því.“
UMFÍ er í hópi 34 aðildarfélaga Almannaheilla.
Á meðal þeirra eru ADHD-samtökin, Landvernd, Bandalag
íslenskra skáta, Barnaheill, Landssamband eldri borgara,
Blindrafélagið, Neytendasamtökin og Öryrkjabandalagið.
Frekari upplýsingar má finna á almannaheill.is.
Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar og
Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla.
664-8892Símon Pípari