Skinfaxi - 01.03.2019, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI
Í þrótta- og ungmennafélög
standa frammi fyrir ýmiss
konar áskorunum til að gera
iðkendum sínum kleift að
njóta þess að stunda íþróttir.
Veiga Grétarsdóttir, formaður
Siglingaklúbbsins Sæfara á Ísa-
firði, benti á það nýverið að
ekkert í jafnréttisáætlunum hér-
aðssambanda og íþróttafélaga
taki til málefna transfólks. Veiga
fór í gegnum kynleiðréttingu fyrir
nokkrum árum. Hún segir félögin standa sig yfirleitt vel en er með
nokkur ráð fyrir íþróttafélög um það hvernig þau geti látið iðkend-
um líða betur.
„Transfólk er miklu fjölmennara en fólk heldur og kynleiðréttingar
algengari. Hér á Ísafirði búa tvö þúsund manns og ég veit um sex
transeinstaklinga en ekki allir hafa farið í gegnum kynleiðréttingar-
ferli. Að minnsta kosti tveir hefja ferlið á Íslandi í hverjum mánuði.
Fólk áttar sig ekki á því. Þess vegna þurfa íþróttafélög að gera allt
sem þau geta til að koma til móts við þarfir iðkenda, alveg sama
hverjar þær eru. Við erum öll manneskjur,“ segir Veiga.
Veiga hefur verið kraftmikil baráttukona fyrir réttindum transfólks
og vakti mikla athygli þegar hún reri á kajak rangsælis í kringum
Ísland sumarið 2019. Hún var ekki aðeins fyrsta íslenska konan til
að gera það heldur fyrsta transmanneskjan í heiminum til að fara
ein í svo langan og erfiðan leiðangur, eftir hennar bestu vitund. Verk-
efni sitt kallaði Veiga Á móti straumnum, sem er táknrænt á marga
vegu. Ferðina fór hún til að vekja athygli á starfsemi Pieta-samtak-
anna og afla fjár fyrir samtökin. Veiga stoppaði á nokkrum stöðum
Veiga Grétarsdóttir:
Líf mitt sem kona er rétt að byrja
Transfólk eru jafningjar
Veiga segir gagnrýni á þátttöku transfólks í íþróttum ósanngjarna.
Hún hafi, svo að dæmi sé nefnt, tekið þátt í kajakmótum hér á
landi, verið ein í kvennaflokki og heyrt út undan sér aðrar konur
telja það ósanngjarnt að hafa leyft henni að taka þátt. „Þær telja
að ég sé með of mikið testósterón, en ef ég og þær færum í blóð-
prufu kæmi í ljós að þær væru með meira magn testósteróns en ég.
Stundum er sagt, þegar kemur að transmálum, að fólk tali um að
við séum að blekkja aðra. Ég er kannski með stærri vöðva af því
að ég fæddist sem karlmaður. En það er engin afsökun. Ef fólk
skoðar ólympískar kajakkonur, sér axlirnar á þeim, magavöðvana,
handleggina og ber mig saman við þær í sams konar fötum verð
ég eins og einhver aumingjakerling í samanburði. Þær myndu rústa
mér! Það eina sem ég vil fá að gera er að lifa sem kona og að
vera tekin sem kona. Við erum öll manneskjur, sama hver við
erum. Það á að leyfa transfólki að taka þátt í íþróttum, alveg
sama hvort það er í einstaklingsíþróttum eða í hópíþróttum.“