Skinfaxi - 01.03.2019, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI
Flóahlaup Samhygðar er með elstu víðavangs-
hlaupum sem haldin eru utan höfuðborgarsvæðisins
en það hefur verið haldið samfellt frá 1979. Síðast-
liðið vor var Flóahlaupið, sem stundum er kallað
„Kökuhlaup Markúsar“, haldið í 41. skipti. Hlaupið
er haldið í Flóahreppi þar sem hlaupinn er svokall-
aður Vorsabæjarhringur sem er um 10 km langur.
Markús Ívarsson, bóndi á Vorsabæjar-
hóli, hefur verið tengdur hlaupinu frá
upphafi og er það enn í dag.
En hver er forsaga hlaupsins?
Vantaði hlaup utan höfuðborgar-
svæðisins
„Ég hafði verið nokkra vetur í Reykjavík og var byrj-
aður að hlaupa aðeins. Þá hafði Sigfús Jónsson, for-
maður víðavangshlaupanefndar FRÍ, samband við mig því
að hann langaði að hafa fleiri svokölluð punktahlaup utan höfuð-
borgarsvæðisins. Hann fékk mig því til að halda eitthvert hlaup.
Fyrstu tvö hlaupin voru óformleg, 4 og 5 km, en í þriðja hlaupinu
voru hlaupnir 10 km sem er þessi Vorsabæjarhringur sem er
nánast tíu kílómetrar. Þetta var svo lengi vel 10 km. Síðan fóru að
koma konur og þá voru líka hlaupnir 5 km. Svo kom einn eldri
maður og kallaði eftir að það yrði farið að aldursflokkaskipta
F LÓAHLAUPIÐ
– KÖKUHLAUP MARKÚSAR
þessu. Hann sagði – við getum ekkert farið að keppa við þessa
tvítugu unglinga. Þá var farið í flokkaskiptingu sem hefur verið síðan.
Fyrst var flokkaskipt í 5 km kvenna en nú er bara flokkaskipt í 10
kílómetrunum frá 39 ára og yngri og síðan upp í tíu ára flokkum. Í
5 km eru opnir flokkar karla og kvenna. Svo eru 3 km fyrir 14 ára
og yngri.“
Boðið upp á kaffi og kökur eftir hlaup
Fyrsta Flóahlaup Samhygðar fór fram laugardaginn 24. febrúar
1979. Hlaupaleiðin, sem var 4 km, var frá býlinu Lækjar-
bakka upp að Félagslundi. Tíu hlauparar tóku þátt og
kom Ágúst Þorsteinsson UMSB fyrstur í mark. Eftir
hlaupið bauð Markús öllum viðstöddum í kaffi og
kökur heim að Vorsabæjarhóli sem var óvænt og
vel þegið. Þar með lagði hann grunn að hinu
fræga „Kökuhlaupi Markúsar“ sem þessi íþrótta-
viðburður hefur oft verið nefndur á meðal lang-
hlaupara. „Mér fannst ómögulegt að þeir væru að
koma svona langa leið án þess að fá þá í kaffi. Þeir
létu til leiðast og síðan hefur það haldist, þ.e. alltaf verið
boðið upp á kaffi eftir hlaup,“ segir Markús. Síðar voru veitingarnar
fluttar í félagsheimilið Félagslund. Margir hlauparar hafa dásamað
veitingarnar sem oft hafa minnt á ágætis fermingarveislu.
Hlaupið Vorsabæjarhringinn
Í öðru Flóahlaupinu, sem haldið var árið eftir, var hlaupaleiðinni
breytt. Hlaupið var frá Félagslundi austur Hamarsveg að Galta-
„Mér fannst ómögulegt
að þeir væru að koma svona
langa leið án þess að fá þá í kaffi“
Við rásmark í 40. Flóahlaupinu 2018 og er Markús Ívarsson fremstur í flokki (nr. 862). Heldur hefur fjölgað í hópnum.