Skinfaxi - 01.03.2019, Síða 27
SKINFAXI 27
stöðum og þaðan til baka aftur að Félagslundi, um 5 km leið. Tólf
hlauparar tóku þátt og bar Ágúst Þorsteinsson aftur sigur úr býtum.
Í þriðja Flóahlaupinu var í fyrsta sinn hlaupinn Vorsabæjarhringur-
inn, þ.e. hringleiðin sem afmarkast af Gaulverjabæjar-, Vorsabæjar-
og Hamarsvegi, samtals 10 km. Rásmark og endamark hlaupsins
var á bæjarhlaði Stefáns Jasonarsonar, bónda í Vorsabæ. Eftir
hlaupið bauð Stefán í kaffi og kökur og gaf jafnframt Stefánsbikar-
inn sem Ágúst Ásgeirsson ÍR vann. Keppt var um bikarinn í tíu ár.
Árið 1992 kom nýr bikar til sögunnar eða Markúsarbikarinn sem
keppt var um í tíu ár. Síðan tók Lögmannabikarinn við 2001 en
hann gáfu Lögmenn á Suðurlandi. Sama ár var Þórshamarinn, sem
Frískir Flóamenn gáfu, veittur fyrstu konunni í 10 km hlaupi en það
var Helga Björnsdóttir ÍR.
Fyrsta konan tók þátt í 8. hlaupinu
Fyrsta konan, sem tók þátt í Flóahlaupinu, var Steinunn Jónsdóttir,
Ármanni. Hún hljóp 10 km hring eins og karlarnir í 8. Flóahlaupinu
sem fram fór 15. febrúar 1986. Margrét Brynjólfsdóttir úr Borgar-
firði tók síðan þátt í 10. hlaupinu. Þegar 11. Flóahlaupið fór fram
29. apríl 1989 hafði konum fjölgað nokkuð og var þeim úthlutað
sérstakri vegalengd eða 5 km. Fyrsta konan, sem sigraði í 5 km
hlaupi, var Martha Ernstsdóttir, ÍR.
Þau tíðindi urðu í 15. Flóahlaupinu að Stefán Jasonarson, bóndi í
Vorsabæ, brá undir sig betri fætinum og tók þátt í hlaupinu í fyrsta
sinn, 78 ára gamall. Einnig var Samhygðarbikarinn veittur í fyrsta
sinn fyrstu konunni í 5 km hlaupi en hann hlaut Gerður Rún Guðlaugs-
dóttir ÍR. Þess má einnig geta að Stefán var líka með í 20. Flóahlaup-
inu 1998, þá 83 ára gamall.
Flestir þátttakendur 2009
Fyrstu ellefu árin, sem hlaupið fór fram, voru þátttakendur í hverju
hlaupi að meðaltali tæplega 12 talsins. Árið 1992 fjölgaði hlaupur-
um úr 9 í 26. Munaði þar mestu um keppendur sem komu frá Náms-
flokkum Reykjavíkur. Sökum fjölmennis var kaffiboðið haldið í Félags-
lundi en þar hófst og endaði hlaupið. Næstu þrettán árin eða til
2004 fjölgaði hlaupurum jafnt og þétt, reyndar með smátröppu-
gangi, og voru þeir 104 það ár. Árið eftir fækkaði nokkuð en frá
2005 til 2014 var meðalfjöldi þátttakenda 93 á ári. Flestir tóku þátt
2009 en þá hlupu 118. Nokkur fækkun varð árin 2015 og 2017
en síðan hefur þátttakendum fjölgað. Í fyrra tóku 94 þátt í Flóahlaup-
inu og í ár 113.
Ekki svo mikill undirbúningur í byrjun
Þegar Markús er spurður nánar út í fyrstu hlaupin segir hann að
menn hafi verið teknir upp í bíl og keyrðir út á enda og svo var
hlaupið til baka. „Síðan var hlaupið frá Félagslundi út 3 km og
svo til baka. Þetta voru þessi fyrstu óformlegu hlaup. Í byrjun var
undirbúningur ekki svo mikill og oft sömu aðilar sem sáu um hann.
Eins voru nokkrar konur sem sáu um kaffiveitingarnar. Seinni árin
hefur þetta verið tengt Ungmennafélaginu Samhygð og síðan Umf.
Þjótanda, þ.e. eftir að Þjótandi var stofnaður 2016. Ég hef meira
séð um verðlaun og styrktaraðila,“ segir Markús.
Þeir eru búnir að koma lengi
„Þegar fór að líða á hlaupin vildu menn fara að fá úrslit strax. Eins
og margir vita er Friðrik Þór Óskarsson tölvusérfræðingur og hefur
m.a. hannað sitt eigið hlaupaforrit til að skrá inn úrslit. Af því að
ég þekkti hann vel fór ég að fá hann til að koma og sjá um þetta.
Ásamt honum hefur Ágúst Þorsteinsson, sem var lengi að fara og
hjálpa til við hlaup, séð um tímann á 10 kílómetrunum. Þeir koma
því oft saman hér og hafa gaman af. Þeir eru báðir búnir að koma
lengi, lengi,“ segir Markús.
Um 1.100 einstaklingar hafa tekið þátt
Samkvæmt samantekt Friðriks Þórs hafa tæplega 1.100 einstakling-
ar tekið þátt í Flóahlaupinu frá upphafi. Oftast hefur Ingvar Garðars-
son tekið þátt eða 39 sinnum alls. Markús Ívarsson hefur 30 sinnum
tekið þátt, Magnús Jóhannsson 22 sinnum og þeir Pétur Ingi Frantz-
son og Jóhann Ingibergsson 21 sinni hvor. Síðan kemur röð af
hlaupurum en alls hafa 27 einstaklingar tekið 10 sinnum eða oftar
þátt í Flóahlaupinu. Þeir hlauparar sem hafa tekið þátt í 10 km
hlaupinu tíu sinnum eða oftar fá afhentan sérstakan skjöld sem
Guðni Sigurvinsson gaf. Núna eru 21 búnir að fara það. Einnig
hafa menn fengið viðurkenningu þegar þeir hafa farið samtals 25
sinnum í öll hlaup.
Þegar rætt er um Flóahlaupið við Markús Ívarsson má oft sjá blik
í auga enda er hann mikill áhugamaður um langhlaup og frjálsar
íþróttir almennt. Hann hefur komið að hlaupunum frá upphafi af
mikilli elju og virðist hvergi nærri hættur. Með honum í undirbún-
ingnum hafa verið fjölskyldumeðlimir, vinir og sveitungar sem saman
hafa séð til þess að þetta skemmtilega sveitahlaup er enn við lýði.
Flestir af þekktustu hlaupurum Íslands hafa tekið þátt í hlaupinu í
gegnum tíðina og ljóst að margir merkja við „Kökuhlaup Markúsar“
á almanakinu ár hvert. Fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt
verður næsta Flóahlaup haldið laugardaginn 4. apríl 2020.
Byggt að hluta til á samantekt Jóns M. Ívarssonar á 25 ára afmæli
hlaupsins.
Gestir ganga að veglegu veisluborði í Flóahlaupinu 2019
sem var 41. hlaupið.
Flóahlaupið 1989. Hlauparar við rásmark á Vorsabæjarhlaði.