Skinfaxi - 01.03.2019, Síða 28
28 SKINFAXI
Börn finna fyrir jákvæðum breytingum í rafíþróttum. Fram-
kvæmdastjóri Ármanns segir iðkendum hafa fjölgað gríðarlega.
Á Facebook-síðu rafíþróttadeildar Ármanns var í haust birt
reynslusaga foreldris 11 ára drengs sem greindur hefur verið
með raskanir. Þar segir meðal annars að starfið hefði rofið
félagslega einangrun hans, styrkt hann félagslega og gefið
honum aukið sjálfstraust sem hann hefur nýtt sér á öðrum
sviðum.
„Þetta er alveg geggjað. En
þetta er ekki eina sagan, þær
eru fleiri. Undirtónninn er alltaf
sá sami: Iðkendurnir hafa ekki
fundið sig í annarri íþrótt, eru
utanveltu af einhverjum orsökum
og sumir á jaðrinum. Þarna
tengjast iðkendurnir. Þeir þurfa
að tala saman, gefa fimmur á
æfingum, þau koma öll út úr
skel sinni og blómstra,“ segir
Jón Þór Ólason, framkvæmda-
stjóri íþróttafélagsins Ármanns.
Ármann er aðildarfélag ÍBR sem
er sambandsaðili UMFÍ.
Jón Þór segir foreldra hafa
verið duglega að senda sér línu um jákvæðar breytingar á líðan
barna sem stundi rafíþróttir hjá félaginu. Nú stunda rúmlega sjötíu
börn og ungmenni frá 10 ára aldri rafíþróttir hjá Ármanni og er
kominn biðlisti. Hann býst við að þau verði orðin rúmlega sjötíu í
byrjun árs 2020.
Tímar í rafíþróttum
hjá Ármanni eru á mánu-
dögum, þriðjudögum, mið-
vikudögum og laugardög-
um frá klukkan 10 til 14,
tveir hópar eru tvo tíma í
senn. Hluti af æfingunni er
styrktaræfingar og teygjur í
40 mínútur ásamt félags-
legum leikjum, heilaleikjum
og leikjum sem innihalda
ýmsar æfingar.
Dæmi um tveggja
klukkustunda æfingu
með elsta hópnum hjá
Ármanni sem er nemend-
ur í 9.–10. bekk:
Líkamlegar- og félagslegar
æfingar í 40 mínútur
Æfingar með eigin þyngd
• Armbeygjur (gæði
fram yfir magn)
• Að sitja í 90 gráðum að
hámarki í tvær mínútur.
• Planki í að hámarki tvær
mínútur.
• Ýmis hreyfing.
• Fyrri þrjár æfingarnar
gerðar aftur.
• Teygjur og félagslegir
leikir.
Æfing í rafíþróttum
• Skipuleg æfing í raf-
íþróttum í 80 mínútur.
Íþrótta- og ungmennafélög hafa í auknum mæli tekið að bjóða upp á rafíþróttir í starfi
sínu. Þau eru mislangt komin á þeirri leið. En hvaða félög eru að innleiða rafíþróttir,
hvernig á að fara að því og er þetta gott fyrir börn?
Íþróttafélagið Ármann í Reykjavík er komið lengst þeirra félaga sem bjóða iðkendum
upp á skipulagðar æfingar í rafíþróttum. Þar eru fjórir þjálfarar og standa æfingar til
boða iðkendum 10–15 ára. Námið er hluti af samstarfi Ármanns við Rafíþrótta-
skólann sem útvegar kennsluefnið. Jafnframt er boðið upp á rafíþróttir hjá fleiri félögum
svo sem KR og Fylki í Reykjavík auk Sindra á Höfn í Hornafirði.
Iðkendur gera
styrktaræfingar
Iðkendur hjá Ármanni voru til að
byrja með á aldrinum 10–15
ára. Iðkendum er skipt í þrjá
hópa eftir aldri og bekkjum. Í
fyrsta hópi eru iðkendur í 5.–6.
bekk, í öðrum hópi iðkendur í
7.–8. bekk og í þriðja hópnum
nemendur í 9.–10. bekk.
Iðkendur eru nú orðnir rúm-
lega sjötíu, bæði strákar og
stelpur. Í skoðun er að bjóða
upp á sérstakt námskeið fyrir
börn og ungmenni með sér-
þarfir eða fatlanir.
En hver eru fyrstu skref íþrótta-
og ungmennafélaga sem vilja
fræðast betur um innleiðingu raf-
íþrótta í starfi félagsins eða
skoða möguleikann á að bjóða
upp á íþróttina?
„Við einsettum okkur að gera
þetta almennilega og bjóða upp
á víðtækt nám í stað þess að búa
til sérstakt lið. Við erum í sam-
starfi við Rafíþróttaskólann og
keyptum allt kennsluefni af þeim.
Það er mjög gott. Við erum því
með námsskrá og gott efni til að
vinna út frá. Við leggjum áherslu
á að félögin kaupi ráðgjöf hjá
Rafíþróttaskólanum. Þau eru með
mjög flott námsefni þar,“ segir
Jón Þór.
Rafíþróttir tengja
iðkendur saman
Jón Þór Ólason, framkvæmda-
stjóri íþróttafélagsins Ármanns.
Rafíþróttir
hasla sér
víða völl