Skinfaxi - 01.03.2019, Síða 30
30 SKINFAXI
Ert þú á leið
í lýðháskóla?
Búið er að opna fyrir
umsóknir fyrir vorönn 2020.
Umsóknarfrestur er til
10. janúar 2020. Nánari
upplýsingar og umsóknar-
eyðublað er að finna á heima-
síðu UMFÍ undir flipanum
sjóðir – styrkir.
Styrkir til ungmenna
UMFÍ hefur undanfarin ár styrkt ungt fólk sem hyggur á nám við
lýðháskóla í Danmörku. Markmið með styrkveitingunni er að
gefa ungu fólki tækifæri til þess að víkka sjóndeildarhring sinn.
Það fái tækifæri til að kynnast nýju tungumáli og menningu og
til að auka færni sína og þekkingu á völdu sviði í gegnum óform-
legt nám og styrkja leiðtogahæfileika sína.
Skólaárið 2018–2019 veitti UMFÍ rúmum tveimur milljónum
króna í styrki til um 50 ungmenna vegna náms í lýðháskólum í
Danmörku.
Besta ákvörðun ævi minnar!
Jóhanna Sóldís Hyström er 19 ára,
frá Ártúnum í Rangárþingi ytra. Hún hóf
nám í íþróttalýðháskólanum á Norður-
Jótlandi (Nordjyllands Idrætshøjskole)
Einstök upplifun í lýðháskóla
Gunnar Ingi Gunnarsson er 19 ára
Grundfirðingur sem stóð á krossgötum eft-
ir útskrift úr menntaskóla. Hann var ekki
viss um hvað hann langaði til að læra,
hvað hann vildi gera við líf sitt. Vinkona
hans mælti með lýðháskóla við hann og
honum fannst það góð hugmynd. Úr varð
að Gunnar hóf nám núna í haust í íþrótta-
lýðháskólanum í Aarhus í Danmörku. Hann
lýsir skólanum sem frábærri upplifun og
lærdómi.
„Hér eru bæði krakkar og kennarar
mjög opnir og skemmtilegir. Þetta er upp-
lifun sem maður sér aldrei á Íslandi og
þegar ég flyt heim ætla ég að hvetja alla
til þess að prófa lýðháskóla í Danmörku.
Mér finnst hálfasnalegt að kalla þetta skóla
því að þetta er svo skemmtilegt. Skólastjór-
inn sagði eitt sem ég mun aldrei gleyma.
Hann sagði: „I don‘t remember what I
learned here, but I will never forget it!“
Mánuðirnir fimm hér í skólanum eru lík-
lega þeir bestu í lífi mínu fram til þessa.
Ég kem heim sem nýr og skemmtilegri
maður og ég veit að allir sem hafa próf-
að lýðháskóla tengja við það.“
nú í haust. Jóhanna segir það einstaka
upplifun að fara í lýðháskóla.
„Í skólanum kynnist þú fullt af nýju fólki,
æfir þig í dönsku og færð að upplifa
margt nýtt. Þessi lífsreynsla er ein sú besta
sem ég hef fengið, að fara frá öllu sem ég
þekkti og stökkva af stað án þess að vita
hvað myndi bíða mín. Það að fara í lýð-
háskóla er ein af bestu ákvörðunum mín-
um. Ég er eiginlega ný manneskja. Hér er
ég búin að kynnast fullt af fólki sem hefur
ýtt á mig sem einstakling og hjálpað mér
til að þroskast. Að kynnast ólíku fólki með
mismunandi skoðanir hefur hjálpað mér
til að byggja mig upp og þróað skoðanir
mínar á því hvernig ég vil að aðrir taki
eftir mér. Það að vera í lýðháskóla snýst
um að skemmta sér, njóta samveru annar-
ra og jafnframt lífsins. Aðalatriðið er samt
sem áður að hafa það hyggeligt.“
Lýðháskólar í Danmörku: