Skinfaxi - 01.03.2019, Síða 32
32 SKINFAXI
Margir eru áhugasamir um verk-
efnið Sýnum karakter. Sigurður
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Ungmennasambands Borg-
arfjarðar (UMSB), vinnur að því
að innleiða verkfærakistu Sýnum
karakter í starf sambandsins.
Hann fær margar fyrirspurnir frá
stjórnendum annarra félaga um
það hvernig hann gerir það.
„Ég mæli svo sannarlega með
verkfærakistu verkefnisins Sýnum
karakter. Þetta er frábært tól fyrir
íþróttafélög enda skilar það sér í
betri einstaklingum, andlega
sterkum, kurteisara fólki sem lætur sér annt um umhverfið og betra
íþróttafólki,“ segir Sigurður. Hann hefur unnið að því frá haustið
2018 að nýta verkfæri í kistu verkefnisins Sýnum karakter í öllu starfi
UMSB. Hann hélt erindi um innleiðinguna á ráðstefnu í október. Það
vakti svo mikla athygli að forsvarsmenn nokkurra íþróttafélaga og
íþróttahéraða höfðu samband við hann til að fræðast um málið.
Sigurður hefur fundað með nokkrum og kynnt ferlið á formanna-
fundum nú á haustdögum.
„Þetta er vakning! Sýnum karakter er frábært verkefni enda sýnir
það að hægt er að þjálfa upp aðra þætti en líkamlega, ekki bara
á æfingu heldur utan hennar líka. Ekki er aðeins einblínt á þann
besta heldur heildina, alla iðkendur, hvernig þeir höndla álag, ganga
um eftir sig, hugsa um aðra og umhverfið. Við erum alltaf að tala
um það og skoða hvernig við getum gert hitt og þetta betur. Það
er greinilega eftirspurn eftir því að bæta starf íþróttafélaganna því
margir eru að pæla í því hvernig við gerum þetta í starfi UMSB og
hvernig við fáum aðra með okkur í vegferðina,“ segir Sigurður en
tekur fram að innleiðingin sé líklega auðveldari hjá þeim sem eru
með fólk í fullu starfi frekar en í hlutastarfi.
„Þetta er ekki flókið. En það er ekki hægt að snúa öllu á hvolf og
umbylta félaginu. Innleiðingin er tímafrek og þarf að hugsa sem
maraþonhlaup. Verkefnið þarf að taka í smáskrefum. En þá verður
árangurinn líka betri,“ segir Sigurður og telur hugsanlegt að lítil
félög eigi betur með að innleiða Sýnum karakter í starf sitt en stór.
„En hver og ein deild getur líka tekið það upp og einhver
áhugasamur innan deildarinnar haldið utan um það,“ segir hann.
Sigurður leggur mikla áherslu á að félögin, sem innleiði verkfæra-
kistu Sýnum karakter, skipi fulltrúa verkefnisins sem heldur utan um
alla þræði þess. Hann er sjálfur í því hlutverki hjá UMSB og fær
þjálfara í lið með sér.
„Við sjáum til þess að krökkunum líði vel í íþróttum og með öðrum.
Þjálfarar taka vel á móti öllum og kanna málið ef einhver skilar sér
ekki á æfingu. Sömuleiðis er hugað að umgengninni, að krakkarnir
gangi vel um íþróttahúsið, vandi sig í tali og læri kurteisi. Ég fer tvisv-
ar í viku í íþróttahúsið þegar krakkarnir eru í tíma. Þar bendi ég þeim
á hvað megi gera betur. Ef skór eru úti um allt og töskur á gólfum
en snagi laus er æfing stöðvuð og iðkendum bent á hvernig betra
sé að ganga um og þau látin raða skónum betur. Það skilar sér út
fyrir starfið og íþróttaiðkunina. Sýnum karakter snýst ekki um að
búa til betra íþróttafólk heldur jákvæða upplifun og góðar minn-
ingar,“ segir hann.
Best að innleiða Sýnum karakter í stuttum skrefum
Sýnum karakter er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ
um þjálfun sálrænnar og félagslegrar færni barna og ung-
menna í íþróttum. Hugmyndafræði verkefnisins byggir á því
að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og félagslega færni
iðkenda eins og líkamlega færni þeirra.
www.synumkarakter.is
Leiðarvísir um innleiðingu
1. Fræðslukvöld fyrir formenn og stjórnendur aðildarfélaga.
Fyrirlestrar frá UMFÍ og ÍSÍ um Sýnum karakter.
2. Fundur með þjálfurum aðildarfélaga félagsins þar sem
skoðað er hvernig hægt er að nýta verkfærakistu Sýnum
karakter í starfi félagsins. Leitað eftir hugmyndum frá
þjálfurum.
3. Fundur með stjórnarmönnum deilda og aðildarfélaga.
4. Starfsdagar tvisvar á önn þar sem þjálfarar hittast og fara
yfir málin.
5. Vinna með einn kassa úr verkfærakistu Sýnum karakter í
hverjum mánuði. Kassarnir eru sex: Áhugi, markmiða-
setning, félagsfærni, sjálfstraust, leiðtogar og einbeiting.
Sigurður Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri UMSB.