Skinfaxi - 01.03.2019, Side 34
34 SKINFAXI
hvernig eigi að bregðast við erfiðum og flóknum málum og koma í
veg fyrir einelti, ofbeldi og áreitni í félagsstarfi. Það gerir börnum
og ungmennum auðveldara með að fá úrlausn slíkra mála þegar
þau koma upp,“ segir Sema Erla.
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra
skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og UMFÍ.
Netnámskeiðið og þróun þess var styrkt af félagsmálaráðuneyti,
Æskulýðssjóði og Lýðheilsusjóði.
Æ skulýðsvettvangurinn, ásamt hópi fagaðila í barnaverndarmál-
um, hefur komið á fót netnámskeiði fyrir fólk sem vinnur með
börnum og ungmennum í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Þeirra á meðal
eru starfsfólk og sjálfboðaliðar frá öllum þeim sem að Æskulýðsvett-
vanginum koma. Námskeiðið er jafnframt opið fyrir alla aðra sem
áhugasamir eru um barnaverndarmál.
„Námskeiðið hefur farið frábærlega vel af stað. Gríðarlega fjöl-
breyttur hópur fólks hefur tekið það, bæði fólk innan og utan Æsku-
lýðsvettvangsins og íþróttahreyfingarinnar. Við höfum fengið mjög
jákvæð viðbrögð og fólk er mjög ánægt með þessa nýjung í barna-
verndarmálum,“ segir Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra Æsku-
lýðsvettvangsins, og áréttar að netnámskeiðið er lifandi verkefni
sem er í stöðugri þróun.
„Við erum til dæmis að skoða möguleikann á því að þýða nám-
skeiðið á fleiri tungumál. Það getur vonandi orðið að veruleika eftir
áramót. Ég hvet fólk til að taka námskeiðið. Það kostar ekkert, tekur
stuttan tíma og er uppfullt af mikilvægum fróðleik fyrir starfsfólk og
sjálfboðaliða í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.“
„Þetta er nýjung í málefnum barnaverndar á Íslandi og í takt við
breytta tíma. Það er mikilvægt fyrir alla, sem starfa með börnum
og ungmennum, að vera meðvitaða um skyldur sínar og ábyrgð.
Markmiðið með netnámskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og
sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt um það
Gott námskeið sem eykur öryggi í íþróttum
Námskeið er hægt að taka á
vefsíðu Æskulýðsvettvangsins: aev.is
Netnámskeið fyrir fólk sem vinnur með börnum og ungmennum í íþrótta- og æskulýðsstarfi:
Takk fyrir stuðninginn
UMFÍ hefur átt í samskiptum við yf ir völd um að auðvelda
þurfi aðgengi aðildarfé lag a að saka skrá og saka vott orðum.
Ra f ræn skrán ing saka vott orða geri stjórn end um kleift að ráða
starfs fólk og sjálf boðaliða sem hæfi börn um.Samkvæmt upp-
lýsingum frá dómsmálaráðherra hefur innleiðingin tafist.
Nú sé stefnt að því að taka þjónustuna í notkun í janúar
eða febrúar 2020.