Skinfaxi - 01.03.2019, Síða 35
SKINFAXI 35
Takk fyrir stuðninginn
Netnámskeiðið
er góður grunnur
„Sjálfboðaliðar eru gjarnan óharðnaðir einstaklingar sem eru að
taka fyrstu skrefin í starfi félaga. Þeir þurfa að öðlast þekkingu ein-
hvers staðar. Netnámskeiðið er kjörið tækifæri og frábær vettvang-
ur til þess,“ segir Sandra Björg Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá
Íþróttafélaginu Hamri í Hveragerði. Hamar er aðildarfélag Héraðs-
sambandsins Skarphéðins (HSK), sambandsaðila UMFÍ.
Sandra var á meðal gesta á kynningu á netnámskeiði Æskulýðs-
vettvangsins í lok september. Hún segir stjórn HSK og Hamars dug-
lega við að fylgjast með upplýsingum tengdum UMFÍ og tengdum
aðilum. Þegar borist hafi boð á kynningu Æskulýðsvettvangsins á
netnámskeiðinu hafi hún verið látin vita og ákveðið að skella sér
þangað.
Sandra segir mál alltaf geta komið upp í starfi félaga af þeim
toga að þau þurfi að láta í hendur fagaðila.
„Við hjá Hamri tökum á öllum málum af festu, stórum jafnt sem
smáum. Við og aðrir stjórnendur íþrótta- og ungmennafélaga þurf-
um að kunna að bregðast við. Netnámskeiðið er algjörlega málið,
Sandra Björg Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Íþróttafélaginu
Hamri í Hveragerði.
besti vettvangurinn. Auðvitað er alltaf hægt að leita hjálpar hjá
barnaverndarfulltrúa bæjarins eða hafa samband við lögreglu ef
alvarlegri mál koma upp. En það hefur vantað tól til að leiðbeina
fólki og að því leyti er netnámskeiðið aðgengilegasti vettvangurinn,“
segir Sandra Björg.