Skinfaxi - 01.03.2019, Page 38
38 SKINFAXI
„Mig langar til að leggja mitt
af mörkum til hreyfingarinnar!“
Nýtt ungmennaráð UMFÍ kom saman eftir sambandsþing UMFÍ. Ráðið er skipað tíu ungmennum á aldrinum
16–25 ára og koma þau víðs vegar að af landinu. Hlutverk ráðsins er m.a. að fara með mál og verkefni í
umboði stjórnar UMFÍ og vera ungmennafélagshreyfingunni til ráðgjafar varðandi helstu verkefni UMFÍ.
Nokkur breyting varð á ungmennaráði UMFÍ og hlutverkum
þess. Þær Kolbrún Lára Kjartansdóttir, sem verið hefur formaður
ráðsins síðastliðin tvö ár, og Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir
hættu báðar í því enda hvor sínum megin við 25 ára aldurinn.
Ungmennaráðið fékk aukið vægi á sambandsþinginu því að
þar var samþykkt tillaga þess um að ráðið fái áheyrnarfulltrúa
í stjórn UMFÍ. Áheyrnarfulltrúinn hefur málfrelsi og tillögurétt á
fundum stjórnar UMFÍ.
Hér til hliðar segja nokkrir meðlimir ungmennaráðsins frá því
hvers vegna þau gáfu kost á sér í ráðið og hvað brennur á þeim.
Ungmennaráð UMFÍ:
Formaður: Ástþór Jón
Tryggvason (USVS).
Varaformaður: Sveinn Ægir
Birgisson (HSK).
Skemmtanastjórar:
Embla Líf Hallsdóttir (UMSK)
og Dagbjört Ósk Jóhanns-
dóttir (HSV).
Samfélagsmiðlastjórar:
Eiður Andri Guðlaugsson
(ÍA) og Soffía Meldal
Kristjánsdóttir (UDN).
Meðstjórnendur:
Halla Margrét Jónsdóttir (ÍA)
Hlynur Snær Vilhjálmsson
(UMFN)
Kolbeinn Þorsteinsson (ÍBR)
Rúna Njarðardóttir (UMSK)
Halla Margrét Jónsdóttir
kemur af sambandssvæði
Íþróttabandalags
Akraness (ÍA)
Af hverju
ungmennaráð UMFÍ?
„Ég fór á ráðstefnuna Ungt fólk
og lýðræði 2019 og fannst
ótrúlega skemmtilegt og fræð-
andi. Ég var mikið með Ung-
mennaráðinu á ráðstefnunni og
sá þá hversu frábær og mikil-
væg starfsemi ungmennaráðs-
in UMFÍ er. Þá varð ekki aftur
snúið og langaði mig að sækja
um í ráðinu þegar næst væri
tekið inn.
Fyrir hvaða málefnum
ungs fólks brennur þú?
Ég brenn fyrir jafnrétti ungs
fólks, bæði almennt og jafnrétti
til náms og íþrótta. Ég vil að
ungt fólk og allt fólk á Íslandi
hafi jafnan rétt til náms og að
stunda íþróttir sama hvar það
býr á landinu. Því fannst mér
tilvalið að fara í ungmennaráð
UMFÍ þar sem tekið er á mikil-
vægum málefnum ungs fólks á
Íslandi.