Skinfaxi - 01.03.2019, Page 41
SKINFAXI 41
„Þetta afmæli hafði legið á mér í langan tíma. En það tókst ljómandi
vel og mætingin var góð,“ segir Bjartur Aðalbjörnsson, fyrirliði karla-
liðs Ungmennafélagsins Einherja í knattspyrnu og sagnaritari félags-
ins. Hann var jafnframt aðalsprautan að því að efna til 90 ára afmæl-
is Einherja. Félagið fagnaði 90 ára afmæli 1. desember síðastliðinn
og var haldið upp á daginn með veglegum hætti. Athöfnin fór fram
í Vopnafjarðarskóla og mættu á annað hundrað gestir, sem þykir
ansi gott í desember.
Öllu var flaggað í tilefni tímamótanna. Víglundur Páll Einarsson,
formaður Einherja, setti afmælishátíðina og svo tók Bjartur við. Karla-
kór Vopnafjarðar og Kór Vopnafjarðarskóla tóku lagið auk þess sem
Brynjar Davíðsson frumflutti Einherjalag sem hann samdi.
Í afmælinu voru stigin ný skref í sögu Einherja þegar Víglundur
afhenti heiðursmerki þess í fyrsta sinn auk þess sem Gunnar Gunnars-
son, stjórnarmaður í UMFÍ, færði félaginu silfurskjöld frá Ungmenna-
félagi Íslands og afhenti starfsmerki. Að formlegheitum loknum var
HVAÐ ER
AÐ FRÉTTA?
Viðurkenningar á hátíð Einherja
Starfsmerki UMFÍ hlutu þau Aðalbjörn Björnsson,
Bjarney Guðrún Jónsdóttir, Svava Birna Stefánsdóttir og
Ólafur Ármannsson.
Gullmerki Einherja fyrir yfir 30 ára ómetanlegt starf hlutu
Aðalbjörn Björnsson, Einar Björn Kristbergsson og Ólafur
Ármannsson.
Silfurmerki Einherja fyrir yfir 15 ára frábært starf hlutu
þau Baldur Kjartansson, Bjarney Guðrún Jónsdóttir, Björn
Heiðar Sigurbjörnsson, Helgi Ásgeirsson, Ingólfur Sveinsson,
Kristján Davíðsson, Linda Björk Stefánsdóttir, Magnús Már
Þorvaldsson, Steindór Sveinsson og Svava Birna Stefánsdóttir.
Heimildarmyndina Við vorum alltaf litla liðið má sjá
á Vimeo og á heimasíðu Einherja: www.einherji.net.
gestum opnaður aðgangur að sýningu um sögu Einherja en þar
mátti sjá um 300 ljósmyndir, búninga, blaðaúrklippur, verðlauna-
gripi, fundargerðir og margt fleira úr fortíðinni. Á sýningunni var
jafnframt sýnd heimildarmynd sem Bjartur gerði ásamt Heiðari
bróður sínum um sögu Einherja.
„Við gerðum myndina á mjög stuttum tíma, tveimur helgum í nóv-
ember, tókum hana á tveimur helgum og klipptum síðan dag og nótt
fram að hátíðinni. „Ég er mjög stoltur af henni,“ segir Bjartur en
bætir við að mörgu sé ólokið varðandi afmælið. Bæði sé mikið efni
óunnið sem þeir bræður tóku fyrir myndina auk þess sem hann sjálf-
ur hafi setið yfir sagnaritun félagsins með hléum síðastliðin 2–3 ár
en í vinnunni gróf hann upp lykilatriði; stofnár Einherja árið 1929
en ekki fjórum árum fyrr eins og talið var. Stefnan var að gefa sög-
una út fyrir 90 ára afmælið. Bjartur telur hyggilegra að salta málið
aðeins. „Ég ákvað að það væri réttara að gefa hana út á 100 ára
afmælinu og slaka aðeins á næstu tíu árin,“ segir hann.
Tímamót á afmælisári Einherja
Heiðursmerki voru afhent í fyrsta sinn á
90 ára afmæli Ungmennafélagsins Einherja
á Vopnafirði í byrjun desember.
Bjartur Aðalbjörnsson, veislustjóri á 90 ára afmælishátíð Ungmennafélagsins Einherja á Vopnafirði.