Úrval - 01.02.1959, Side 12

Úrval - 01.02.1959, Side 12
■ÚRVAL um. Hér skulum við láta okk- ur nægja þá staðreynd, að sál- ar- og tilfinningalíf fjölda manna nær aldrei fullum þroska, já og jafnvel að á sálar- lífi skynsamra og fullþroska manna eru torráðnar hliðar, sem dulvituð, óljós öfl stjóma. Hitt er okkur fullvel ljóst að það er meira en lítið bogið við það, að góð stúlka eins og Inga skuli eiga að gegna því hlutverki að vera bæði barnfóstra og hjúkr- unarkona fyrir Bassa. Það get- ur aldrei verið rétt, að ein manneskja sé tæki og önnur markmið. Hin óljósa fórnar- hugmynd sem liggur að baki slíkri röksemdafærslu hlýtur að vera röng. Eða er okkur þetta ekki full vel ljóst? Svo virðist stundum sem það sé álitið eðlilegt að kona taki að sér móðurhlutverk í sambúðinni við mann sinn. En allt um það er Inga ekki neydd til slíks, svo að það hlýtur að vera eitthvað í henni sjálfri sem sækist eftir þessu hlutverki! Það em til menn, sem eru knúnir áfram af innri nauð- til að taka á sig þjáningar og erfiðleika, segir sænskur sál- könnuður. Það er hlutverk sem ávinnur þeim meðaumkun ann- arra — eða veitir þeim að minnsta kosti tækifæri til að vorkenna sjálfum sér — og þeim er ósjaldan fróun í að tala um sig sem píslarvotta eða misskilda snillinga! Á meðan slíkir menn eru ungir, ístöðu- STRÁKAR ALLA ÆVI litlir og drengjalegir skírskota þeir til meðfæddrar þarfar ungra stúlkna til að hafa ein- hvern til að hugga, styðja og hjálpa, því að einmitt með því að vera góðar við einhvern og hjálpa honum styrkist sjálfs- vitund þeirra og þær vaxa í eigin augum. Fullvaxta, van- þroska karlmaður höfðar á sama hátt til þarfar kvenna til þess að verða einhverjum að liði, og þessvegna finnur hann alltaf nýja mömmu, sem tekur hann að sér og reynir að létta honum erfiðleikana í lífinu. Þetta hlutverk huggara og verndara getur haft svo sterkt aðdráttarafl fyrir sumar konur, að þær lendi æ ofan í æ í kynn- um við þannig veiklundaða menn, sem í rauninni eru hrein sníkjudýr: ofdrykkjumenn, slæpingjar, deyfilyfjaneytendur, taugaveiklaðir sjúklingar, sem ekki vilja vera frískir. Ekki er fátítt að konur sem skilið hafa við slíka menn, lendi á svipuð- um mönnum aftur. Þær virðast aldrei geta lært að vara sig á þessum hættulegu mönnum, því að orsökin til þess að þær laðast að þeim er innra með þeim og hún verður aldrei meðvituð. Stundum blessast þetta bærilega. Fyrir kemur að það verður maður úr Bassa eftir að Inga hefur tekið hann að sér. Bassi heldur sér í skefjum því að honum þykir í raun og veru vænt um Ingu og þörf hans fyrir hana er sterkari en löng- 10
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.