Úrval - 01.02.1959, Blaðsíða 14
tDrval
hagar lífi sínu. Hún verður að
stjana við strákinn, hann vill
hafa mömmu heima. Honum
sámar ef hún lætur í ljós löng-
un til að halda vinnu sinni, sem
er henni til mikillar ánægju og
gerir hana fjárhagslega óháða:
konan hans skal svei mér ekki
þurfa að vinna utan heimilisins,
hann er einfær um að sjá fyrir
henni, segir hann. Og svo pírir
hann í hana peningum til heim-
ilisins, en í raun og veru getur
hann hvorki né vill sjá fyrir
fjölskyldu, því að hann þarf
sjálfur að nota peningana
„sína“ í bíla, kaffihúsalíf og
annað, sem hann, „sem fyrir-
vinnan“. telur sig hafa rétt á.
Það eru ýmis karlmannsein-
kenni sem villa á sér heimildir,
þannig að við höldum að við
höfum fyrir okkur fullþroska
karlmann, þó að hann sé í
rauninni strákur. Það er ekki
víst, að flugmaður eða sjómað-
ur með angan af seltu í kringum
sig sé fullveðja karlmaður,
margir smástrákar geta kveikt
varðeld í rigningu! Það eru líka
til bæði karlmenn og strákar,
sem hafa gaman af bílum, en
þeir sem alltaf vilja aka fram
úr og ekki þola að aðrir aki
fram úr þeim, eru enn óþrosk-
aðir strákar.
Hylli kvenna er heldur ekki
merki um karlmennsku. Róman-
tíkin í kringum Don Juan getur
verið spennandi, en hún er ekki
til þess fallin að þroska hann.
Sá sem ætíð lætur mann í ó-
STRÁKAR ALLA ÆVI
vissu er ekki annað en strákur.
Augljósasta merkið er, að hann
hringir ekki á þeim tíma sem
hann hefur lofað — þ. e. a. s.
stundum hringir hann, en því
er aldrei að treysta. Maður get-
ur ekki treyst því að hann mæti
á réttum tíma til stefnumóts,
því að strákur lætur sig tímann
engu skipta og hann heldur
ekki loforð sín. Stúlkan eða
konan, sem hefur puntað sig til
að fara út með Bassa má eins
vel búast við því að þurfa að
bíða allt kvöldið, því að Bassi
á í hrókaræðum um mótorhjól
við nokkra félaga sína, eða sé
hann eldri þá er hann á fundi
með einhverjum viðskiptavin-
um, og báðir hafa gleymt því
að fjórum dögum áður höfðu
þeir boðið út með sér stúlku
einmitt þetta kvöld.
Strákurinn í manninum sýn-
ir sig einnig í starfi hans.
Strákur getur verið áhugasam-
ur, hann á sér áhugamál í tóm-
stundum, en áhugi hans er allt-
af skammvinnur. Vanþroska,
barnslegan mann skortir alltaf
úthald. I stað þess er strákur-
inn sífellt með nýtt á prjónun-
um, hann ætlar að sækja um
nýja atvinnu, gera góða verzlun
o. s. frv. Þegar vanþroska mann
dreymir um nýja atvinnu get-
ur orsökin verið sú að hann un-
ir sér ekki í gamla starfinu, er
orðinn leiður á því. Hann gerir
sér ekki ljóst, að hann ber or-
sökina innra með sér og tekur
hana með sér þó að hann skipti
12