Úrval - 01.02.1959, Page 37

Úrval - 01.02.1959, Page 37
FÉLAGAR 1 BARÁTTU VIÐ DAUÐANN ÚRVAL kvæmt aðgerðina í tveim á- föngum, því að æxlið var ekki iilkynjað, heldur brúnt æxli, beinskemmd sem venjulega er kölluð „ostitis fibrosa.“ Þessi sjúkdómur kemur venjulega fyrir allt annars staðar í lík- amanum; vafasamt er að nokk- ur skurðlæknir hafi fyrr séð hann í hálsliðunum. Þetta var mjög fágætt tilfelli. Engir öndunarerfiðleikar eða •blóðrásartruflanir höfðu gert vart við sig meðan á aðgerð- inni stóð, eins og við höfðum óttast. Okkur fannst þetta ganga kraftaverki næst. Nú saumaði ég saman vöðvaskurð- inn og síðan löngu skinnsprett- una. Við gengum frá umbúðun- um og stóðum andspænis erfiðu vandamáli: hvernig áttum við að skorða höfuðið? Við urðum að sýna fyllstu gætni, því að ein óhöndug hreyfing gat nægt til þess að rjúfa taugarnar í mænunni, sem stjórna andar- drættinum, og þá mundi sjúk- lingurinn kafna. Ég bað því yfirlækninn minn að fylgjast vel með sjúklingn- um, mér fannst á honum að hann væri enn ekki mjög bjart- sýnn á árangurinn. Hann var vantrúaður á að mænan mundi jafna sig. Innst inni var ég líka í vafa. Það hafði verið óhugnan- legt að sjá hana svona útflatta. En við vorum samt glaðir yfir því að sjúklingurinn hafði slopp- ið lifandi af skurðarborðinu. Ekkert er eins skelfilegt og þegar sjúklingur deyr á skurð- arborðinu, og skurðlæknirinn stendur á eftir augliti til aug- litis við vandamenn hins látna. Ef þessi ungi piltur hefði dáið í höndunum á mér, mundi það hafa fengið þeim mun meira á mig sem ég hafði í rauninni ögrað forsjóninni. Það sem eft- ir var dagsins var erilsamt eins og venjulega: fyrst aðrar skurð- aðgerðir, þá ráðstefnur, fund- ir, fyrirlestrar og próf. Um kvöldið var ég örmagna. Samt sat ég lengi við skrifborðið. Allt í einu var hurðinni hrund- ið upp og yfirlæknirinn minn, sem allajafna var rósemin sjálf, kom æðandi inn. Ég bjóst við hinu versta. En hið eina sem hann stamaði út úr sér var: ,,Hann er farinn að hreyfa fæt- urna!“ I fyrstu var mér ekki ljóst • við hvað hann átti. Svo jafnaði hann sig og hélt áfram: „Hann er fyrir löngu vaknaður, og hugsið yður, prófessor, hann er þegar farinn að hreyfa svolítið tærnar og jafnvel fæturna líka.“ Þetta var ótrúlegt. Nú var það ég sem lét í ljós vantrú. Þetta var blátt áfram óhugsan- legt. Ég vissi að lamað fólk flýr oft á náðir sjálfsblekkingar, og ég vissi líka hvernig það fór að því. Að minnsta kosti varð ég að sannfærast af eigin sjón. Við flýttum okkur til sjúklingsins — ég svifti bókstaflega af hon- um sængurfötunum, og þá . . . 35
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.