Úrval - 01.02.1959, Page 44

Úrval - 01.02.1959, Page 44
J>að hefði getað orðið eitt af skæðustu vopnutn, sem fundið hefur verið upp — en það var aldrei notað! Leynivopnið mikla — leöurblökurnar Grein úr „World Digest“, eftir Eugene Burns og George Seullin. SÍÐLA dags þann 7. desem- ber 1941 ók vingjamlegur, miðaldra skurðlæknir og upp- finningamaður, Lytle S. Adams að nafni, frá heimili sínu í Pennsylvaníu áleiðis til Wash- ington. Hann hafði skrúfað frá útvarpinu í bílnum, en hugsanir hans voru allar bundnar við litlu flugvélaverksmiðjuna, sem hann stjórnaði og fyrirætlanir um miklar ræktunarfram- kvæmdir á eyðilendum Banda- ríkjanna. Hann var einmitt ný- kominn úr rannsóknarför til Texas og New Mexico og lang- aði mest af öllu til að hefjast handa sem fyrst um úrvinnslu sýnishornanna, er hann hafði aflað sér. Sunnudags-sinfónían truflaði ekki hið minnsta þessar hugleiðingar læknisins, en frétt- in um árásina á Pearl Harbour hreif hann í einu vetfangi inn á annað svið, sem átti eftir að hafa stórkostleg áhrif á líf hans og skapa eitt furðulegasta leynivopn veraldarsögunnar. Þegar Adams kom til Wash- ington ók hann þess vegna ekki til gistihúss síns, heldur beina leið í þinghúsbygginguna. Jenn- ings Randolph, þingmaður frá West Virginia sagði síðar svo frá, að marga undarlega gesti hefði hann fengið um ævina, en engan, sem kom honum jafn- mikið á óvart og Adams læknir. Hann hafði þekkt lækninn lengi og borið virðingu fyrir honum, en þarna stóð þessi mektarmað- ur í dyrunum og hrópaði: „Leð- urblökur! Leðurblökur! það er lausnin!" Randolph benti hon- um að setjast og Adams hóf að útskýra: „Yður er velkomið að álíta mig vitskertan, en fyrir tveim mánuðum var ég í Carlsbad- hellunum ásamt fjölskyldu minni og þar sáum við milljónir af mexíkönskum leðurblökum, sem þyrptust út úr hellunum, þegar fór að skyggja. Það er ekki laust við, að hrollur fari um mann við þá sjón. Þær eru þrjá tíma að komast út og svo stíga þær upp í loftið eins og reykjarmökkur. Auðvitað fékk ég strax mikinn áhuga á þeim, 42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.