Úrval - 01.02.1959, Side 50

Úrval - 01.02.1959, Side 50
tjRVAL LEYNIVOPNIÐ MIKLA LEÐURBLÖKURNAR ýmsir að því að finna beztu leið- irnar til að geyma þau í dvala. En nú kom nýtt vandamál til sögunnar. Leitað var ráða hjá uppgjafaflugmanni, sem sagðist ekkert hafa á móti því að fljúga með 72000 leðurblökur innan- borðs, en öðru máli væri að gegna með 72000 skammta af bensínhlaupi, sem gæti fuðrað upp hvenær sem væri, ef ein- hver leðurblakan yrði óróleg og hylkið yrði fyrir hnjaski. Adams læknir kippti þá öllu í lag með því að finna upp ör- yggisútbúnað þegar í stað. I júní var Adams tilbúinn að gera fyrstu æfingarárásina með leðurblökunum sínum. Hún fór fram í E1 Paso í Texas, og not- aðar voru einungis 1000 leður- blökur, hver og ein einasta með óvirka sprengju festa við sig, málaða í skærum litum. Þær voru látnar falla úr sprengju- flugvél í 8000 metra hæð, og allt fór samkvæmt áætlun. Næst skyldi gerð tilraun með raunverulegum sprengjufarmi. Til þess var valið víðáttumikið eyðilegt svæði suður af Carls- bad, en sjálft árásarsvæðið var 1250 fermílur, vaxið þyrnóttu kjarri og kaktusum. Þangað var ekið þúsundum af umbúðaköss- um; sumir voru settir þétt sam- an til að líkjast sem mest þorp- um, öðrum var dreift á hring- svæði með 40 mílna radíus. ,,Það var undarleg tilfinning, sem greip okkur,“ sagði Adams síðar. ,,Við biðum eftir miðnætt- inu. Þá skyndilega, eins og stutt hefði verið á hnapp, stóð eyði- mörkin í björtu báli svo langt sem augað eygði.“ Athugun daginn eftir leiddi í ljós, að helmingur umbúðakass- anna hafði eyðilagzt, og voru sumir þeirra 40 mílur í burtu. ,,Og þetta var úti í eyðimörk- inni“, sagði Adams. „Hugsið ykkur, ef hér hefði verið um milljónaborg að ræða. Þegar leðurblökurnar hafa kveikt í á milljón stöðum, kemur allt hitt af sjálfu sér, og borginni verður ekki bjargað." Áætlunin var nú komin af tilraunastiginu og ekkert annað eftir en hrinda henni í fram- kvæmd. Til að allt „liti betur út,“ sendi herinn heilan hóp af ljósmyndurum til varaflugvall- arins í Carlsbad. Þeir mynduðu af mestu samvizkusemi leður- blökur, geyma, starfslið, flug- vélar og sprengjur. Þvínæst fóru þeir inn í ískalt herbergið, þar sem leðurblökurnar lágu í dvala, tóku þær sofandi og festu við þær virkar sprengjur og hengdu þær síðan upp á snúru fyrir utan, með skýjaðan himin í baksýn, til þess að ná af þeim góðri mynd. En þeim hafði sézt yfir tvennt. Þeir gleymdu að setja öryggisútbún- að dr. Adams á sprengjurnar og gerðu sér enga grein fyrir, hvaða áhrif heitt eyðimerkur- sólskin hefur á frostkaldar leðurblökur. Því var það, að á 48
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.