Úrval - 01.02.1959, Page 54

Úrval - 01.02.1959, Page 54
tTRVAL um orðum, allur líkami konunn- ar (gagnstætt líkama karl- mannsins) er gæddur „kyn- töfrum“, þ. e. a. s. hver einasti blettur hans er aðlaðandi í aug- um gagnstæða kynsins. Þegar ég segi ,,allur“, tala ég einungis út frá fræðilegu sjónarmiði, reynslan hefur sýnt og sannað allt annað, það getur hver og einn borið um, sem heimsótt hefur nektarnýlendu. Ef við gengjum nakin dags daglega, er ekki ósennilegt, að kynorkan yrði árstíðabundin, eins og hjá dýrum merkurinnar. Okkur er ofvaxið að skynja kyntöfra, er koma frá öllum lík- amanum, og þess vegna verður að beina athygli okkar að einu ,,kynhrifasvæði“ í einu. Þessi svæði breytast um leið og tízkan, og þau verða mis- munandi áberandi á hverjum tíma. Á árunum milli 1920 og 30 voru það fótleggir, sem mest voru í tízku. Brjóstin hafa ým- ist verið að stækka eða minnka, og á fyrrgreindu tímabili voru þau algerlega bannfærð. Það voru meira að segja seldar ,,brjóstapressur“, eins konar arfleifð frá píslarverkfærum miðaldanna. En það þurftu fæstar konur á þeim að halda. Konur eru sem sé óhugnanlega sveigjanlegar. Sjálf líkamsbygging þeirra virð- ist laga sig eftir aldarhættinum á hverjum tíma. Ef holdugur líkami er í tízku, verða þær jafn bústnar og gyðja á mál- KLÆÐNAÐUR OG KYNTÖFRAR verki eftir Rubens; ef grannur vöxtur er hins vegar það sem við á, verða þær mjóslegnar eins og Venus á mynd Botticellis. Ef axlimar eiga að vera beinar, verða þær það, jafnvel án þess að púðar komi þar nærri. Séu aftur á móti slapandi axlir í- mynd fegurðarinnar, skulu þær slapa, hvað sem hver segir. Þetta má raunar skoðast sem hvert annað léttúðarhjal, en það er samband á milli sniðsins á fötunum, sem konan gengur í, og þess heims, sem hún lifir í. Föt geta verið ágætur mæli- kvarði á stjórnmál og á heims- mál yfirleitt. Eru föt konunnar þröng í mittið? Þá lifir hún í „þröng- sýnum“ heimi, þar sem miklar takmarkanir eru á hjónabönd- um og barneignum. Lætur hún mjaðmirnar sýnast stærri en þær eru frá náttúrunnar hendi með því að nota krínólínur og álíka tilfæringar? Þá lifir hún á tímum auðsældar og hárrar fæðingartölu. Reynir hún að gera mittið eins mjótt og hægt er? Þá er fæðingartalan á niðurleið. Klippir hún af sér hárið, fer úr mjaðmabeltinu og gengur í föllituðum kjólum? Þá er þjóðfélag hennar í upplausn og fjárhagurinn á heljarþröm. Föt geta verið óþægilega sannsögult vitni fyrir þann, sem lært hefur að skyggnast inn í þann heim, er að baki þeim liggur. Þau eru þverskurður mannkynssögunnar. 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.