Úrval - 01.02.1959, Side 76

Úrval - 01.02.1959, Side 76
TJRVAL NORÐURLJÓSIÐ og í lófunum. Nye var alveg í ess- inu sínum og það var eins og ekkert stæði til. Eftir fimm mínútur voru þeir komnir að byggingu Norður- Ijóssins og var vísað inn i skrif- stofu Pages. Henry bauð gestunum sæti og bað ungfrú Moffatt að fara út úr skrif- stofunni. Smith hneppti frá sér jakk- ann og virti Page fyrir sér sem snöggvast. Honum leizt vel á mann- inn. Hann ræskti sig og sneri sér strax að umræðuefninu. „Herra Page“, sagði hann, „þér vitið sjálfsagt af hvaða ástæðu við erum hingað komnir til fundar við yður. Somerville útgáfan hefur mik- inn áhuga á blaði yðar.“ Henry hugsaði sig um andartak. „Ég skil ekki hvers vegna þeir hafa svona mikinn áhuga á Norðurljós- inu.“ „Við þurfum að færa út kvíarnar", sagði Smith. „Og okkur er kunnugt um, hve blað yðar nýtur mikils álits, herra Page. Það er skoðun okkar, að Norðurljósið sé óumdeilanlega fyrsta flokks á sínu sviði.“ „Hvers vegna ætti ég þá að selja það ?“ „Ég ætla að segja yður eitt, herra Page“. Smith hallaði sér fram í stóln- um, talaði hægt og með áherzlu. „Hingað til hefur yður tekizt að standast samkeppnina við stóru Luhdúnadagblöðin, og til þess liggja sérstakar orsakir. En slíkt ástand getur ekki varað lengi.“ „Ég er á annarri skoðun. Við gerum meira en að standa í stað. Við höf- um fjögur þúsund fleiri kaupendur nú en á sama tíma í fyrra. BÍað okk- ar er gefið út í áttatíu þúsund ein- tökum, en ég efast um að Morgun- blaðið seljist í meira en níu þúsund eintökum hér um slóðir. „Hnöttur" Mighills kemur hingað í tæpum sjö þúsund eintökum og af því er mikið endursent." „Rétt er það. Við vitum að blað yðar hefur selzt vel, herra Page, og við erum ekki að gera lítið úr af- reki yðar. En tímarnir eru að breyt- ast. Við höfum tekið tæknina i þjón- ustu okkar og samkeppnin á eftir að verða miklu harðari. Það eru ekki lengur við lýði nema örfá sjálfstæð blöð úti á landsbygðinni, og eftir tvö til þrjú ár verða þau öll komin i eigu blaðasamsteypunnar." „Ekki Norðurljósið". „Að sjálfsögðu eruð þér bjartsýnn, herra Page. En þér eruð þó ekki búinn að gleyma því, þegar fimm blöð í Miðlöndum voru þurrkuð út á einu ári.“ „Og hundruðum starfsmanna, þar á meðal yfir hundrað blaðamönnum, var hent út á gaddinn." „Alveg rétt. Ég er i rauninni á sömu skoðun og þér, herra Pege. Þér munið eftir því, hvernig fór fyrir „West Country Bulletin“ I fyrra.“ „Hvort ég man.“ „Auðvitað, það var Jothamsam- steypan, en ekki við, sem bar á- byrgðina á því. En það var sorgleg saga — smáblað reynir að berjast við auðugan blaðahring i London, menn missa atvinnuna, hluthafar standa uppi blásnauðir, og allt staf- aði þetta af því, að heilbrigð skyn- semi fékk ekki að ráða. Ég held, að 70
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.