Úrval - 01.02.1959, Síða 77
NORÐURLJÓSIÐ
ÚRVAL
hver .sanng'jarn maður hljóti að
óska þess, að slíkt komi ekki fyrir
aftur.“
Henry horfði hvasst á Smith. „Á
að skilja þetta sem hótun?“
„Kæri herra Page, mér hefur aldr-
ei komið neitt slíkt til hugar. Eg
er að reyna að benda yður á, hve
núverandi aðstaða yðar er hagstæð."
Hann opnaði skjalatösku sína, tók
upp úr henni ýmis plögg og leit
yfir matið á eignunum, blaðinu og
prentsmiðjunni.
Hann sagði: „Við metum alla
eignina á sjötiu og fimm þúsund
pund. Fyrsta tilboð okkar var að-
eins gert í tilraunaskyni. Ég hef
umboð til að bjóða yður hundrað
þúsund pund fyrir Norðurljósið".
Henry sagði stillilega: „Ég á ekki
í neinni deilu við yður. Þér eruð að-
eins að vinna skyldustarf yðar. En
þér verðið þó að gera yður ljóst,
hvað er að gerast i heimi blaðanna
okkar í dag. Nokkrar voldugar
samsteypur, sem hyggjast færa út
veldi sitt hvað sem það kostar, reyna
að leggja undir sig öll blöð, sem
þau girnast, i þeim einum tilgangi að
auka söluna og skara fram úr keppi-
nautunum. Við þekkjum allir áhrif
blaðanna til góðs eða ills. Blöðin
geta eyðilagt einstaklinga, myndað
ríkisstjórnir eða fellt þær, þau geta
jafnvel hafið styrjöld. Sum blöð,
voldug og víðlesin, beita áhrifavaldi
sínu af ábyrgðarleysi og í ósæmileg-
um tilgangi, og það eru þau, sem
eru bölvaldar þjóðarinnar í dag og
geta auðveldlega orðið henni til tor-
tímingar."
Meðan Page var að tala, sauð
gremjan í Nye. Nú greip hann fram
í: „Ég býst við að þér undanskilj-
ið þetta flekklausa blað yðar.“
„Vissulega," sagði Page rólega.
„Enda þótt áhrifasvæði þess sé tak-
markað, fylgir það fordæmi þeirra
merkisblaða, sem leiðbeina og
mennta fólkið, og reyna að skapa
skynsama borgara, í stað þess að
forheimska þjóðina á samblandi af
kynórum, æsifregnum og ósæmileg-
um fréttaflutningi."
„Er yður eitthvað sérstaklega illa
við kynferðismál ?“
„Við skulum ræða málið rólega,"
flýtti Smith sér að segja og reyndi
að draga úr ágreiningnum. „Það er
engin þörf að deila, herrar minir."
„Ég ætla að láta yður vita,“
hreytti Nye út úr sér, „úr því að
yður virðist ókunnugt um það, að
kynhvöt og peningar eru tveir megin-
ásar mannlegs lífs. Hvað þýðir að
loka augunum fyrir því? Hvað hald-
ið þér að verkamaðurinn vilji helzt
lesa, þegar hann er að sötra teið
sitt klukkan sex á hráslagalegum
morgni? Ekki þessar slepjuðu ræð-
ur, sem þér berið á borð fyrir hann,
heldur lifandi og kröftugar frásagn-
ir Morgunblaðsins".
„Og hann fær líka hressinguna
hjá ykkur — á mánudaginn var þrjú
lík.“ Page var orðinn fölur og æðin
á hálsi hans sló ört, en hann var samt
rólegur, þegar hann tók nokkrar úr-
klippur upp af skrifborðinu. „Þið
hafið heiðrað mig með því að fram-
kvæma ítarlega rannsókn á blað-
inu, sem ég gef út. Á hinn bóginn
hef ég safnað fáeinum úrklippum úr
blöðum ykkar undanfarna daga.
7i