Úrval - 01.02.1959, Síða 81
NORÐURLJÓSIÐ
ÚRVAL
inu. Hann sagði: „Það var eitt at-
riði enn. Ég held að við ættum að
hundsa þá."
„Hárrétt," sagði Maitland. „Láta
eins og þeir séu ekki til. Og bíða
svo eftir fyrsta tölublaðinu."
Næstu daga var talsverður spenn-
ingur í mönnum í ritstjórnarskrif-
stofum Norðurljóssins. Ýmiskonar
orðrómur og sögusagnir voru á
kreiki. Talsvert starfslið var kom-
ið frá London og leitaði eftir hús-
næði í Wossburn. Meðal þess var
Tina Tingle, blaðakona, sem var
víðkunn fyrir kvennadálka sína I
Morgunblaðinu. Á laugardagskvöld-
ið fór fylking manna um borg-
ina; menn þessir báru spjöld, sem
á var letrað með stórum stöfum:
STÓRFRÉTT FYRIR HEDLESTON.
DAGLEG TlÐINDI KOMA UT Á
MÁNUDAGINN.
Henry leið ekki vel um helgina.
Það ringdi mikið, og dökk vætuskýin
voru í samræmi við hugarástand
hans. Hann hafði alltaf átt erfitt
með svefn, og það var vafasamt,
hvort hann svaf meira en sex tíma
þessa helgi. Loks rann mánudags-
morguninn upp. Þegar hann ók til
vinnu sinnar, gaf hann gætur að því,
hvort nokkuð óvenjulegt væri á
seyði á götunum. Og á móts við
Sparisjóðinn sá hann hóp blaða-
drengja, sem voru að taka við blöð-
um úr nýjum gulum Tíðmda-vagni.
Þegar hann gekk upp stigann á leið
til skrifstofu sinnar, fann hann hjart-
að hamast í brjósti sér. Nýja blaðið
lá þarna á skrifborðinu hans, við
hliðina á blómunum, sem ungfrú
Moffatt kom með úr garðinum sín-
um á hverjum mánudegi. Hann leit
á blaðið og hrökk við.
Teikning af kjarnorkustöð náði
yfir hálfa fremstu síðuna og fyrir
neðan stóð með stóru svörtu letri
á rauðan og hvítann grunn:
KJARNORKUSTÖÐ FYRIR
HEDLESTON.
NÝRRI KJARNORKUBORG
ÆTLAÐUR STAÐUR HJÁ UTLEY.
Áformað er að reisa mikla kjarn-
orkustöð, ásamt stóru íbúðarhverfi,
hjá Utley, í útjaðri Hedlston.
Tíðindi eru hreykin af þvi að geta
skýrt lesendum sínum frá þessum
stórmerku tíðindum í fyrsta tölublaði
sínu, en heimildarmaður blaðsins er
háttsettur embættismaður í Kjarn-
orkunefndinni. Þessi fyrirætlun, sem
haldið hefur verið leyndri þar til
nú, mun hafa stórkostleg áhrif til
aukinnar hagsældar í bæjarfélag-
inu . . .
Henry hætti lestrinum. Þetta var
stórfrétt, ein þýðingarmesta frétt
fyrir Hedleston i hálfa öld, og Norð-
urljósið hafði ekki einungis misst
af henni, heldur höfðu Tíðindi
hreppt hana. Allt lá nú Ijóst fyrir.
Somerville hafði fengið vitneskju um
að þessar stórfelldu framfarir væru
í aðsigi I héraðinu, og það hafði ráðið
gerðum hans, en ekki hitt, að hann
hefði sérstakt álit á Norðurljósinu.
Enda þótt vafalaust hafi átt að halda
áformi stjórnarinnar leyndu, hafði
hann komizt á snoðir um það, og
ekki hikað við að nota það í barátt-
unni við Norðurljósið. Henry varð
nú Ijóst í fyrsta sinn, hve voldugur
Somerville var í raun og veru.
Henry reyndi að stilla sig. Hann
75