Úrval - 01.02.1959, Page 89

Úrval - 01.02.1959, Page 89
NORÐURLJÓSIÐ ÚRVAL Holden horfði skritilega til Henrys. „Góður borgari gætir sinna eigin hagsmuna nú á dögum. Verðbólgan rænir jafnt og þétt þá sem eiga ríkisskuldabréf. Það er verið að fé- fletta dygga ættjarðarvini eins og þig. Þú hefur tapað meira en 39000 pundum af höfuðstól þínum og þú getur átt á hættu að tapa meiru. Ef tap þi'tt heldur áfram að vaxa eins og að undanförnu, verður varasjóður þinn uppétinn eftir sjö eða átta vik- ur.“ „Mér er þetta fyllilega ljóst,“ sagði Henry. „Þess vegna er ég kom- inn til að biðja um lán.“ „Gegn tryggingu á hverju?" „Auðvitað i Norðurljósinu — hús- inu, prentsmiðjunni og „good will“ blaðsins." Það varð ónotaleg þögn, svo sagði Holden: „Mér þykir fyrir þvi, Henry. Eg vildi ekkert fremur en hjálpa þér. En ég get það ekki.“ Henry varð þrumulostinn. Það hafði aldrei hvarflað að honum, að hann fengi nei. „Af hverju ekki?“ spurði hann. „Þú þekkir mig, og Norðurljósið. Við eigum eignir. Þú hefur haft reikning okkar öll þess ár —“ „Ég veit það. Það er sárt að þurfa að neita þér. En við erum í miklum peningavandræðum og getum sama og ekkert lánað. Ríkisstjórnin vill blátt áfram ekki að við lánum fé.“ „En þetta er innanbæjar, næstum því persónulegt mál,“ andmælti Henry. „Við skulum að minnsta kosti ræða það." „Það er tilgangslaust. Eg hef ekki vald til þess. Það yrði að leggjast fyrir stjórnina. Af hverju ferðu ekki að tala við stjórnarformanninn?“ „Weatherby ?“ „Já. Hann er í verksmiðjunni núna. Á ég að hringja til hans og boða komu þína? Henry reis hægt á fætur. Weath- erby . . . sá maður sem hann hefði ef til vill síðast kosið að leita ásjár hjá. En það var ekki um annað að gera. „Mér þætti vænt um ef þú hringdir," sagði hann. Tuttugu mínútum síðar stóð hann fyrir utan skrifstofu Weatherbys. Þegar Henry gekk inn stóð Weather- by við stóra gluggann út að Victoríu- stræti og horfði brosandi út. „Komdu hérna Henry, líttu á.“ Kringum torgið hafði öll umferð stöðvast vegna þess að löng hala- rófa af konum með barnavagna, barnakerrur og öll hugsanleg farar- tæki sem hægt var að aka í börnum, mjakaðist eftir götunni, en í farar- broddi var bíll með hátalara. BARNAVAGNAFYLKINGIN MIKLA UNGBARNASAMKEPPNIN ER I DAG 1 RÁÐHÚSINU LESIÐ DAGLEG TlÐINDI „Ekki svo galið, ha?“ Hann klapp- aði Henry á bakið. Honum var sýnilega skemmt. „Hvað finnst þér?“ „Sjálfsagt góð sölubrella. En ekki sérlega virðuleg." „En áhrifamikil. Það er um að gera að ná til kvenfólksins. Þeir eru að reyna að selja sína vöru eins og ég mína. Nye er heilinn á bak við þetta. Hafðu auga með honum." Hann settist í stólinn sinn og kross- 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.