Úrval - 01.02.1959, Side 94

Úrval - 01.02.1959, Side 94
ÚRVAL NORÐURLJÓSIÐ reka. Stundum geng ég margar mil- ur fram með sjónum án þess að mæta nokkrum manni, og það er margt sem ég finn. Straumurinn ber það á land." Orðin komu, einföld, opin, náttúr- leg. Eldurinn magnaðist, tungur hans lýstu upp skuggana og léðu andliti hennar hlýjan roða. Það varð þögn. Henry hafði árum saman lifað án ástríkis á heimili sínu. Dorothy var eigingjörn eins og æskufólki er títt, hrokafull og kaldranaleg í við- horfum sínum og sýndi honum litla ástúð. 1 sambúðina við Alice var ikomin einhver stöðnun. Henry hafði alltaf fyrirlitið þá menn sem kvört- uðu undan því að konur þeirra mis- skildu þá og mætu þá einskis. Hann vissi um sjálfs sin galla og hafði því reynt að forðast árekstra. En oft hafði Alice gert honum lífið erf- itt með duttlungum sinum, sjálfs- meðaumkun og bamalegum þótta, og þar við bættist algert áhuga- leysi hennar á starfi hans. Hvílíkur munur, hugsaði hann, á þessari kyrrlátu tilfinningaríku stúlku, sem sat þarna og starði í eldinn, með áhyggjur i svipnum, en þó engan vott eirðarleysis í hönd- unum. Ástúðin streymdi frá henni frjáls og náttúrleg. Frá kyrrlátri þögn hennar andaði samúð og skiln- ingi. Undir ofurfargi þeirrar bar- áttu sem hann hafði þurft að heyja að undanförnu hafði ásótt hann næstum sár löngun til að njóta skilnings. Hann leit á hana sem veikleika, en samt gat hann ekki bælt hana niður — hann þráði blíðu. Hjá Coru gat hann fundið eitthvað af þvi sem hann hafði saknað svo sárt. Að lokum fannst honum tími kom- inn til að fara. Hún fylgdi honum út að bílnum. Á dimmbláum kvöld- himninum lýstu skærar stjörnur og brimhljóð barst frá ströndinni. Svalt kvöldloftið var andbært, hann sá það fyrir vitum hennar þegar barm- ur hennar reis og hneig. Hún sagði lágt: „Einmanaleikinn verður sárari en nokkru sinni fyrr þegar þú ert farinn." Hún virtist skyndilega gripinn ein- hverju óþoli. Hún skalf. Hönd henn- ar, sem enn hélt um hönd hans, var mjúk og köld. „Ertu frísk?" spurði Henry. ,,Þú ert ísköld á höndunum." Hún hló stuttum, kæfðum hlátri. „Kaldar hendur, heitt hjarta, stend- ur einhversstaðar. Hvílíkt kvöld. Það er skömm að vera inni. Gætum við ekki gengið svolítið eftir strönd- inn ?" „En við erum búin að fá okkur göngu, vina mín.“ „Það er svo bjart og fallegt." Rödd hennar var óstyrk. „Það er lítill netakofi út með ströndinni. Við gæt- um setzt þar og horft á öldurnar." Hún leit á hann og það var undar- lega eirðarlaus spurn í augnatilliti hennar. Þegar hann hristi höfuðið laut hún höfði, „Það er orðið svo framorðið, elsku Cora. Eg verð að fara. Við förum einhvern tíma seinna." „Heldurðu það?" „Hertu þig upp. Það fer allt vel fyrir ykkur Davíð, okkur öllum." Hún þrýsti hönd hans að síðu sér.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.