Úrval - 01.02.1959, Page 98

Úrval - 01.02.1959, Page 98
ÚRVAL NORÐURLJÖSIÐ „Já, ef þú vilt orða það svo. Enda er hún ein af fjölskyldunni." „Dálagleg afsökun!" Hún náði tæpast andanum, en hún varð að halda áfram. „Hvert harn gæti séð hvað er að gerast. Finnurðu ekki sjálfur að hugur þinn snýst æ meir um hana með hverjum deginum sem líður?“ Hann leit biðjandi á hana. „Við skulum ekki fara að rífast, Alice. Við eigum nógu erfitt samt." „Ég stend bara á rétti minurn og er að reyna að bjarga þér frá sjálf- um þér. Ég veit hvernig karlmenn geta orðið á þinum aldri—.“ „Að þú skulir segja þetta!" Hann sótroðnaði. „Það sem þú ert að gefa í skyn er óhugsandi." „Nei, ekki fyrir Coru." Alice titr- aði; orðin flæddu af vörum hennar. „Þú getur sagt að ég sé hlutdræg, en það er eitthvað við hana — hún er óbreytt kona, og- ég er ekki viss um að hún sé góð kona. Hún hefur of mikinn kynþokka. Hún mundi taka hvern þann karlmann sem hún girntist. Ef mér skjátlast ekki, mundi hún heldur vilja þig en Davíð. Og ég efast ekki um að þú takir hana fram yfir mig." Henry opnaði munninn eins og lostinn höggi og lokaði honum svo aftur. Hann var náfölur. Alice varð skelfd þegar hún sá hve djúpt hún afði sært hann. AUt i einu var henni illri lokið. Hún vissi að hún var að fá eitt af þessum „köstum" sínum og vildi fá það. Augnalokin fóru að titra og það komu kippir í vangana. Hún fann hvernig hún stirðnaði öll og hælarnir lömdust í gólfið. Henry tók viðbragð og laut yfir hana. „Gáðu að þér, Alice -— gerðu það — vertu róleg, þú veizt hvað þessi köst fara illa með þig —.“ Þegar hún sá fölt, áhyggjufullt andlit hans svona nærri sér varð skyndilega snögg breyting á tilfinn- ingum hennar, og hún vafði hand- leggjunum um háls hans. „Ég er af- brýðisöm og hugsunarlaus, en ég varð að leysa frá skjóðunni. Fyrir- gefðu mér, Henry. Ég skal gera allt fyrir þig, vinna fyrir þig, svelta fyrir þig, vaða eld og vatn. Þú veizt hvað ég gekk í gegnum þegar ég átti börnin. Þú veizt ég þjáðist. Það var þín vegna, Henry. Frá því ég sá þig fyrst í fyrirlestrarstofu Scotts prófessors hefur þú verið sá eini fyrir mig. Ég skal skrifa undir skjal- ið. Fáðu mér það núna, og penna, fljótt, fljótt." „1 fyrramálið, Alice. Þú ert of þreytt núna." Hár hennar hafði losnað og annað kast virtist í aðsigi. En til allrar hamingju kom Hanna heim í sömu andrá, og án þess að gefa sér tíma til að fara úr kápunni kom hún rak- leitt inn í stofuna. Hún sótti lyktar- söl'tin og hjálpaði Henry til að róa Alice. „Svona nú, frú Page,“ sagði hún að lokum. „Liggið þér nú fyrir stundarkorn, svo getið þér farið upp til yðar." „Þakka yður fyrir, Hanna. Þér er- uð alltaf jafngóð við mig,“ muldr- aði Alice. „Þið eruð öll góð við mig." Hún brosti til Henrys. Allt var nú breytt. 1 mildu skini afturbatans langaði hana af öllu hjarta að gera eins og hann vildi. Hún hvíldi sig 92
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.