Úrval - 01.02.1959, Page 101

Úrval - 01.02.1959, Page 101
NORÐURLJÓSIÐ ÚRVAL ingar höfðu sáð í barnslund hans beiskju. Eftir að hann eltist þróað- ist með honum sú ákvörðun að freysta aldrei neinum, taka aldrei tillit til tilfinninga annarra og lifa aðeins fyrir sjálfan sig. Þegar hann hóf blaðamennsku, tuttugu og eins árs gamall, lögðu þessir eiginleikar, samfara góðri eðl- isgreind, grundvöllinn að skjótum frama hans. Eftir máltíðina fannst Leonard hann undir það búinn að taka því sem dagurinn kynni að bera í skauti sér. Klukkan hálf þrjú fór hann í símaklefann og bað um 7034, og hóf máls ísmeygilegri röddu: „Halló, er- uð það þér, frú Harbottle? Hvern- ig líður yður? Gott. En gigtin . . . já, hún er þreytandi. Ég hringdi bara, kæra frú Harbottle, til að láta yður vita að ég kem að öllum lík- indum seinna í dag ásamt tveim mönnum til þess að ganga frá þessu máli okkar. Ha ? Blessaðar verið þér, þér þurfið ekki að hafa neitt sam- vizkubit af því. Þér eruð í yðar fyllsta rétti. Nei, frú Harbottle, þér getið ekki dregið yður til baka nú, það yrði mjög alvarlegt mál, við myndum neyðast til að blanda lög- fræðingum okkar í það. Og auk þess er þetta gullið tækifæri. Já, auð- vitað eru gamlir vinir beztir, en ekki ef þeir bregðast. Árum saman hafið þér bókstaflega verið féflettar og þér munuð ekki fá eyri frá þeim hér eftir. Það er þá ákveðið . . . Nei, verið ekki að ómaka yður með te handa okkur. Eg kem í te til yðar seinna í vikunni. Sælar á meðan, frú Harbottle." Því næst hélt Nye til skrifstof- unnar. Hann var tæplega setztur við skrifborðið þegar Greeley og Smith komu. Framkvæmdastjórinn var rúmiega fimmtugur, tiltakanlega hár og grannur, langleitur, kinn- fiskasoginn og fölur yfirlitum. Nye fannst alltaf eins og hann væri ný risinn úr gröf sinni, eða öllu heldur eins og vandlega snyrt lík. Hann var i dökkum fötum með harðan flibba og uppi yfir honum framstætt barka- kýli. En þrátt fyrir sérkennilegt út- lit og sérvizkulega framkomu, var hugsun hans skörp. „Þér höfðuð ekki tíma til að koma með Smith". Það leyndist ásökun í augnatillitinu. „Einhver verður að gæta virkis- ins,“ sagði Nye. Þeir byrjuðu á því að athuga reikn- ingana og söluna síðastliðinn mánuð. Því lengur sem beinaberir fingur Greeleys blöðuðu í reikningunum, þvi meir tognaði á andliti hans. Loks tók hann ofan hornspangargleraugun og hallaði sér aftur á bak. „Þetta er verra en ég hafði búizt við.“ „Við höfum sparað efniskaup og dregið úr ritstjórnarkostnaði," sagði Smith. „Ef þeir bara vildu byrja á Utley-kjarnorkuverinu-. Þér vitið að við reiknuðum með mikilli fjölgun kaupenda þegar byrjað yrði á því. En því er sífellt slegið á frest.“ „Utley kemur þessu ekki við. Þið eruð að tapa kaupendum sem þið voruð búnir að fá. Það merkir að Page hefur fengið þá aftur.“ Smith kom með langorða afsök- unargreinargerð, gerði mikið úr erfiðleikunum sem þeir hefðu mætt, 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.