Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Page 31

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Page 31
Islensk skáldverk HENGIFLUGIÐ Birgir Sigurðsson Hengiflugið er í senn heit ástarsaga og óvægin sam- tímasaga, borin uppi af miklu innsæi og ósviknum skap- hita. Ungur maður og illa kominn vaknar til sterkrar lífsástar eftir þjáningar og sjálfsblekkingar sem ógna bæði hans eigin tilvist og þeirra sem næst honum standa. Hér er spurt um sannleika og lygi, leitað svara í leyndum afkimum mannssálarinnar og lífsupp- gjöfinni sagt stríð á hendur. 323 blaðsíður. Forlagið. ISBN 9979-53-214-9 Verð: 2.980 kr. HJARTASALT Guðlaugur Arason bessi bók er sjálfstætt fram- hald sögunnar vinsælu Pelastikk. Hér er lýst ferm- ingarsumri Loga þegar hann fer á sumarvertíð með Hrís- eyjarbát. Hann er umvafinn spennandi félögum, jafnt á sjó sem á landi, og glímir við kynþroskann, ástina, veiði- eðlið og karlmennskuna og framtíðina. Sagan er sögð af mikilli tilfinningu fyrir efninu og er bæði spennandi og heillandi í einfaldleik sínum. 150 blaðsíður. Mál og menning. ISBN 9979-3-0573-8 Verð: 2.380 kr. HVATT AÐ RÚNUM Álfrún Gunnlaugsdóttir Álfrún Gunnlaugsdóttir er einn virtasti höfundur okkar og hver ný skáldsaga eftir hana er bókmenntaviðburð- ur. í þessari glæsilegu og margslungnu skáldsögu vef- ur hún saman af listfengi þrjár sögur frá þremur ólík- um tímaskeiðum sem tengj- ast með óvæntum hætti. 336 blaðsíður. Mál og menning. ISBN 9979-3-0572-X Verð: 2.980 kr. wmmmmmmmmmmmmmmmmmi ÍSLANDSKLUKKAN Halldór Laxness Ný útgáfa af íslandsklukk- unni. Hún er meðal helstu snilldarverka Halldórs Lax- ness og hefur verið ein vin- sælasta skáldsaga íslensku þjóðarinnar um árabil. /s- landsklukkan er stórbrotin listræn túlkun á einhverju myrkasta skeiði f sögu ís- lendinga, 17. og 18. öld. Annars vegar er hér á ferð baráttusaga Jóns Hregg- viðssonar í leit að sjálfstæð'i og réttlæti, hins vegar ör- lagaþrungin ástarsaga Snæ- fríðar íslandssólar og Arnas- ar Arnæusar. Saman tvinn- ast þessir þræðir á áhrifa- mikinn hátt. 457 blaðsíður. Vaka-Helgafell. ISBN 9979-2-0047-2 Verð: 3.980 kr. wtmmmmmmmmtmBmmmmmmak KVENNAGALDUR Björgúlfur Ólafsson Höfundur þessarar Reykja- víkursögu er 31 árs að aldri og hefur áður sent frá sér tvær skáldsögur, unglinga- bókina Hversdagsskó og skýjaborgir, 1989og Síðustu sakamálasöguna, 1990. Báðar þær bækur hlutu lof- samlega dóma. Kvennagaldurer skemmti- saga. Hún segir frá nokkrum skólasystkinum úr mennta- skóla, fólki á besta aldri og flestum á uppleið í borgarlíf- inu - eða svo virðist við fyrstu sýn. Aðalpersónan Kjartan er þjóðkunnur, ein- hleypur og umtalaður, hefur komið víða við í fjölmiðla- heiminum og er auk þess mikið kvennagull og nýtur kvenhylli sinnar í ríkum mæli. í samkvæmi hjá tveimur bekkjarsystkinanna tekur at- burðarásin í ástamálum Kjartans þó óvænta stefnu svo að bæði hann og aðrir ruglast í ríminu. Og niður- staðan verður óvænt svo að ekki sé meira sagt. Bekkjarsystkini Kjartans koma hér einnig mikið við sögu, bráðlifandi persónur, dæmigert nútímafólk. 215 blaðsíður. Almenna bókafélagið hf. ISBN 9979-4-0122-2 Verð: 2.390 kr. | I.JÓSIN BI.AKTA HANNES SIGFÚSSON LJÓSIN BLAKTA Hannes Sigfússon Skáldsaga um gamalt fólk: Á snjallan og áhrifaríkan hátt segir höfundur frá draumum persóna sinna og minning- um, samskiptum þeirra og lífsbaráttu fyrr og nú. Saga sem snertir alla sem láta sig einhverju varða afdrif og ör- 31
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Íslensk bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.