Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Page 34

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Page 34
íslensk skáldverk PARADÍSARHEIMT Halldór Laxness Ný útgáfa af Paradísarheimt. Á ytra borðinu fjallar sagan um líf og örlög fátæks og um- komulítils fólks úr íslenskri sveit en þegar betur er að gáð kemur í Ijós þung undir- alda í dýpri gerð sögunnar. Paradísarheimt er marg- slungið verk og síbreytilegt að efni, stíl og máli; að uppi- stöðu harmsaga en á yfir- borðinu tindrar sagan af kímni. Þetta er ein vinsælasta skáldsaga Halldórs Laxness og hefur verið kvikmynduð. 298 blaðsíður. Vaka-Helgafell. ISBN 9979-2-0042-1 Verð: 3.295 kr. PATT Kristján Jóhann Jónsson Patter skáldsaga, ekki skák- bók. Patt heitir sú staða á skák- borðinu þegar hvorugur skákmannanna má hreyfa mann. Öllu hefur verið leikið í strand og hvorugur sigrar. Skáldsagan Patt segir frá valdabaráttu og valdi hins illa. Hún segir líka frá ást, samkeppni, afbrýðisemi og hatri. í persónulegri refskák þessarar skáldsögu er ekki teflt til jafnteflis. 249 blaðsíður. Lesmál s.f. ISBN 9979-60-042-X Verð: 2.680 kr. ÓBREYTT VEBÐÁ JÓLA- BÓKUM Bókaútgefendiir SAGAN AF BRAUÐINU DÝRA Halldór Laxness Sagan af brauðinu dýra hef- ur verið ófáanleg um langt skeið en er nú endurútgefin. Hún birtist fyrst í tveimur köflum í Innansveitarkroniku eftir Halldór Laxness en er hér örlítið breytt frá hendi skáldsins sem sjálfstæð saga. Sagan lýsir lífsviðhorf- um tveggja tíma, annars vegar er kyrrstætt bænda- samfélag fyrri alda, hins veg- ar nútíminn. Sagan segir frá Guðrúnu Jónsdóttur sem að- hyllist fornar dyggðir og setur þá meginreglu ofar öðru að maður sé trúr sjálfum sér. Sagan er meistaralega sögð og á brýnt erindi við fólk á öll- um tímum. Snorri Sveinn Friðriksson listmálari gerði myndir í bókina sem lýsa einkar vel andblæ þessarar sérstæðu sögu. Gjafabók í hæsta gæðaflokki. Vaka-Helgafell. ISBN 9979-2-0152-5 Verð: 3.820 kr. SALKA VALKA Halldór Laxness Salka Valka var fyrsta bók Halldórs Laxness sem aflaði honum frægðar utan íslands. Hún hefur verið með vinsæl- ustu bókum skáldsins, ekki síst meðal yngri kynslóðar- innar en hún hefur m.a. verið færð upp sem leikrit hjá Herranótt í Menntaskólanum í Reykjavík. Þá hefur sagan verið kvikmynduð. Salka Valka hefur alla tíð höfðað sterkt til þeirra sem hafa kynnst henni á bók - ekki síður en hún hefur sterk áhrif á þá sem deila með henni ör- lögum í sögunni. Salka Valka er nú endurútgefin. 453 blaðsíður. Vaka-Helgafell. ISBN 9979-2-0061-8 Verð: 3.980 kr. SJÁLFSTÆTT FÓLK Halldór Laxness Ný útgáfa þessa stórbrotna skáldverks. Sjálfstætt fólk er saga einyrkjans Bjarts í Sumarhúsum og veitir ein- stæða innsýn í líf íslensku þjóðarinnar á fyrri hluta ald- arinnar. Þegar sagan kom fyrst út (1934-1935) var hún glóandi innlegg í stjórnmála- baráttu þess tíma en telst nú til mestu dýrgripa í menning- arsögu íslendinga. 526 blaðsíður. Vaka-Helgafell. ISBN 9979-2-0038-3 Verð: 3.980 kr. SJÖSTAFAKVERIÐ Halldór Laxness Sjöstafakverið er smásagna- safn sem fyrst kom út árið 1964 en er nú gefið út að nýju. í kverinu eru sjö sögur og hefur Halldór sjálfur látið svo um mælt að þar sé ein saga fyrir hvert æviskeið mannsins. Hér má finna sumar þekktustu smásögur Halldórs, meðal annars 34 J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Íslensk bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.