Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Síða 38
Þýdd skáldverk
BoiUT $öí$beiti
Af öllu hjarta
AF ÖLLU HJARTA
Bodil Forsberg
Þýðing: Skúli Jensson
Farþegaflugvél nauðlendir.
Hjónin Móna og Peter kom-
ast lífs af en ungur sonur
þeirra týnist. Af öllu hjarta er
saga um ástvinamissi ungra
hjóna, undirferli og brostnar
vonir en einnig óvænta og
mikla hamingju. Spennandi
ástarsaga.
176 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
ISBN 9979-50-033-6
Verð: 1.890 kr.
ÁHELJARBRÚN
Duncan Kyle
Þýðing:
Gissur Ó. Erlingsson
Þekktur lögfræðingur fær í
hendur flókna morðgátu sem
hann verður að leysa. Dauð-
inn bíður við næsta fótmál.
Hröð atburðarás, æsilegur
eltingaleikur um lönd og álfur
eru einkenni þessarar mögn-
uðu spennusögu sem er ein
af bestu bókum meistarans
Duncans Kyle.
215 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
ISBN 9979-50-047-6
Verð: 1.990 kr.
Bálán ei getð eftir sapníðfríári kvikmwdjn
SylvestfeStalM
i .
Jotf Rií'in skráði eftir&ikmyiKjahandm
Michael France og Sytvesier SiUone
Frumhugmynd: Johntsna
Á YSTU NÖF
Jeff Rovin/Michael
France/Sylvester Stallone
Þýðing: Ingrid Markan
Sagan segir frá félögum
björgunarsveitar í Klettafjöll-
um, sem lendir í því að reyna
að bjarga hóþi fólks sem
talið er vera í sjálfheldu í fjöll-
unum í æðandi stórviðri.
Hópurinn reynist vera hópur
miskunnarlausra bófa sem
eru að reyna að ná til sín
miklum verðmætum sem er
að finna á þessum slóðum. -
Bókin er gerð eftir sam-
nefndri kvikmynd sem sýnd
var í Stjörnubíói og býr yfir
einhverjum æsilegustu
áhættuatriðum sem sést
hafa á hvíta tjaldinu.
190 blaðsíður.
Frjáls fjölmiðlun hf.
- Úrvalsbækur.
ISBN 9979-840-02-1
Verð: 895 kr.
BLÓÐFJÖTRAR
A.J.Quinnell
Þýðing: Björn Jónsson
Skáldsagan Blóðfjötrar er
fjórða Quinnell-bókin sem
kemur út á íslensku. Hinar
eru sögurnar Einfarinn,
Stríðsfréttaijósmyndarinn og
Þagnarumsátur. Þetta eru
allt spennusögur en nafn
höfundar er dulnefni og ýms-
ar getsakir uppi í Bretlandi
um hið rétta nafn. En hvað
sem því líður kann höfundur-
inn vel að segja sögur og
gera þær sþennandi.
Blóðfjötrar segir frá tveim-
ur einmana manneskjum,
konu í New York og
karlmanni í Bombay á Ind-
landi. Þessar tvær persónur
rífa sig upp úr hversdagsleik-
anum, hún af brýnni þörf til
að leita sonar síns, hann af
ævintýraþrá og lenda þau
saman á Seychelleyjunum
austan við Afríku. Þar og á
hafinu umhverfis gerist meg-
inhluti sögunnar. Miklir at-
burðir gerast, ástarævintýri,
hrikalegir viðburðir á sjó og
landi og flókin samskipti ólík- |
legustu persóna. Þessar
reynslulitlu manneskjur öðl-
ast sannarlega lífsreynslu,
kynnast heiminum nú á dög-
um eins og hann raunveru-
lega er og mislitu mannlífi
hans.
275 blaðsíður.
Almenna bókafélagið hf.
ISBN 9979-4-0112-5
Verð: 2.958 kr.
BLÓÐRÚNIR
Bill Crider
Þýðing: Haraldur
Bernharðsson
Félagsbrenglaður raðmorð-
ingi segir lesandanum
hvernig hann velur fórnar-
lömbin eftir „blóðrúnum“ sem
J
38