Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Qupperneq 46
Þýdd skáldverk
1936 í Perú og er einn af virt-
ustu höfundum suður-amer-
ískra bókmennta. Hann
bauð sig fram til forseta í
kosningum í heimalandi sínu
1990 og tapaði naumlega
fyrir andstæðingi sínum.
„Sagan er sögð á meist-
aralegan hátt, persónurnar
eru Ijóslifandi og kraftmiklar.
Vargas Llosa er einn skarp-
greindasti rithöfundurinn
sem fram hefur komið í lang-
an tíma.“- Árni Blandon, DV
13. september 1993.
179 blaðsíður.
Almenna bókafélagið hf.
ISBN 9979-4-0096-X
Verð: 2.958 kr.
FANNIE FLAGG
Höfundur mclsðlubólMilnrw
STEIKTIR CRÆNIR TÓMATAR
HVÍTT SKÍTAPAKK OG
FLEKKÓTTUR SVERTINGI
Fannie Flagg
Þýðing: Jóhanna G.
Erlingsson
Fannie Flagg er óborganleg.
Saga hennar Steiktir grænir
tómatar gaf fögur fyrirheit
sem ekki bregðast í þessari
frásögn hennar af Daisy Fay
Harper, kraftaverkamannin-
um og öðru litskrúðugu fólki.
Enn leiðir hún okkur um nýja
stigu og veitir okkur innsýn í
líf Suðurríkjabúa sem al-
menningur hefur litlar spurn-
ir af, sýnir okkur afkima utan
alfaraleiðar þar sem mannlíf-
ið ólgar við erfið skilyrði, seg-
ir okkur frá hvítu skítapakki,
svörtum svertingjum og ein-
um flekkóttum, fólki sem
muna má sinn fífil fegri og
heldur dauðahaldi í fyrri
reisn.
Leiftrandi frásagnarhæfi-
leiki, frábær tök á söguefn-
inu, hugkvæmni, ásamt ein-
stakri kímnigáfu, hafa skipað
Fannie Flagg á bekk meðal
fremstu höfunda Bandaríkj-
anna.
262 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-170-5
Verð: 2.495 kr.
í FAÐMI LJÓSSINS
Betty J. Eadie
Þýðing: Sigurður Hreiðar
Betty Eadie dó á sjúkrahúsi
eftir uppskurð, aðeins 31 árs
að aldri. Fjórum stundum
síðar vaknaði hún aftur til
lífsins, og mundi þá í smáat-
riðum það sem fyrir hana
hafði borið í dánarheimum.
Það sem fyrir hana bar með-
an hún var dáin hefur verið
kallað „áhrifamesta dauða-
reynslan fyrr og síðar.“ -
Hún vaknaði til þessa lífs á
ný með boðskap til að deila
með öðrum - boðskap sem
gefið hefur fjölda fólks bjart-
ari von og endurnýjaðan lífs-
vilja.
Frjáls fjölmiðlun hf.
ISBN 9979-840-07-2
Verð: 1.990 kr.
í FANNAKLÓM
Desmond Bagley
Þýðing: Torfi Ólafsson
Það hefur orðið slys í námu-
héraði í Nýja-Sjálandi. Snjó-
flóð hefur fallið og orðið
fjölda manna að bana, auk
þess sem það hefur lagt
námubæinn í eyði. Vitni
koma fram hvert af öðru og
varpa Ijósi á málið. Spennan
eykst og hið óvænta kemur
svo í Ijós í sögulok. Það er
álit margra að í þessari ó-
venju spennandi skáldsögu
nái frásagnarsnilld hins
geysivinsæla höfundar há-
marki.
290 blaðsíður.
Suðri.
ISBN 9979-9051-9-0
Verð: 1.980 kr.
I FELULEIK
UM VÍÐAN VÖLL
Mary Higgins Clark
Þýðing: Jón Daníelsson
Laurie Kenyon, tuttugu og
eins árs háskólanemi er á-
kærð fyrir moröið á Allan
Grant, prófessor og kennara
hennarvið háskólann. Þegar
hann finnst stunginn til bana
eru fingraför hennar alls
staðar, á hurðinni, á glugga-
tjöldunum og á... hnífnum.
Þegar Laurie var fjögurra
ára var henni rænt og haldið
í gíslingu í tvö ár. Afleiðing
þess kemur fram í allri hegð-
un hennar og verður til þess
að hún veit ekki lengur hvort
hún hefurframið morðið eða
ekki... en það er vakað yfir
hverju skrefi hennar án þess
að hún viti...
255 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-163-2
Verð: 1.995 kr.
í SKOTLÍNU
Max Allan Collins
Þýðing: Pétur Halldórs-
son/Ragnar Hauksson
/Sigurður Hreiðar
Frank Horrigan var lífvörður
Kennedys forseta en
mistókst að bjarga lífi hans
með sínu þegar forsetinn var
veginn í Dallas. Þrjátíu árum
seinna fær hann annað tæki-
færi til að kasta sér í skotlín-
una þegar öðrum forseta er
veitt banatilræði. Þetta er ó-
venju góð og spennandi
kvikmyndasaga eftir sam-
nefndri kvikmynd sem sýnd
var í Stjörnubíói.
46