Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Page 55
Eftir að Fagra veröld kom
út hefur Tómas Guðmunds-
son verið nefndur Reykja-
víkurskáldið og það vissu-
lega með réttu. Meirihluti
Ijóða þessarar ástælustu
bókar er tengdur Reykjavík
og það sem meira er -
skáldið sá Reykjavík í allt
öðru Ijósi og frá allt öðru
sjónarhorni en áður hafði
Þekkst meðal íslendinga.
Ljóðin urðu þjóðinni, og þá
ekki síst yngri kynslóðinni í
Reykjavík, ekki einungis
yndislestur heldur upp-
götvun - ný lítil og falleg
höfuðborg stóð á rústum
þeirrar gömlu sem í hugum
landsmanna, líka sinna eigin
íbúa, hafði til þessa ein-
kennst af öðru en yndisleik.
í tilefni 60 ára útgáfu-
afmælis á Fögru veröld hefur
Almenna bókafélagið nú
gefið út geisladisk með lög-
um við texta Tómasar.
Stefán S. Stefánsson sá um
útsetningar en söngvarar eru
Egill Ólafsson og Guðrún
Gunnarsdóttir. Á disknum
má finna nokkrar af helstu
Perlum íslenskrar dægurtón-
listar, t.d. Tondeleyó, Hótel
dörð og Fyrir átta árum.
Almenna bókafélagið hf.
ISBN 9979-4-0116-8
/-0136-2/-0138-9
Verð á bók: kr. 1.980 kr.;
geisladiskur: 2.199 kr.;
kassetta: 1.499 kr.
FJALLGANGA
Tómas Guðmundsson
Tómas Guðmundsson þarf
ekki að kynna, bækur hans
°g Ijóð hafa unnið sér stað í
hjörtum landsmanna. Ljóðið
Fjallganga eftir Tómas hefur
sennilega skemmt fleiri ís-
lendingum síðastliðin 60 ár
en nokkurt annað íslenskt
kvæði. Og hér skipta hvorki
aldur né kynslóðabil máli,
barnið hefur jafngaman að
kvæðinu og hinn roskni, sá
sem fæddur er eftir miðja
þessa öld brosir við lestur
þess ekki síður en kynslóð
skáldsins gerði. Ljóðið er
með öðrum orðum óháð
tíma og rúmi, fjallar af list-
rænum léttleika um fastan
fylgifisk mannlegs eðlis.
í bókina Fjallganga hefur
myndlistarkonan Erla Sig-
urðardóttir gert listrænar
myndir af sinni alkunnu
snilld. Þær sýna okkur, auk
hins stórbrotna landslags,
unga manninn sem leggur á
fjallið andstuttur af ákafa en
hið hrikalega umhverfi skelfir
hann, kemst þó upp á tindinn
og síðan klakklaust heim en
liggur í martröð „margar
næstu nætur". Hælist svo af
afrekum sínum löngu
seinna.
34 blaðsíður.
Almenna bókafélagið hf.
ISBN 9979-4-0123-0
Verð: 1.295 kr.
HÚN SPURÐI HVAÐ
ÉG TÆKI MEÐ MÉR
Á EYÐIEYJU
Jón Stefánsson
Höfundur yrkir hér af sann-
kallaðri kunnáttu og miklum
innileika og vefur orðum sín-
um utan um flest það sem á
vegi verður. Hann leyfir sér
jafnvel að yrkja tilgangslaust
Ijóð og tileinka andardrætti
sínum, reka lífíð áfram með
spörkum og taka í höndina á
dauðanum.
45 blaðsíður.
Forlagið.
ISBN 9979-53-190-8
Verð: 1.687 kr.
HÚSIN OG GÖTURNAR
Kristján Þórður Hrafnsson
Ljóðin í bókinni eru 37 tals-
ins, ástarljóð. Höfundurinn,
sem er fæddur 1968, er þeg-
ar þjóðkunnur fyrir Ijóð sín.
Hann hefur áður sent frá sér
eina Ijóðabók, / öðrum skiln-
ingi, 1989 og birt Ijóð og þýð-
ingar á erlendri Ijóðlist lið-
inna alda í blöðum, tímarit-
um og safnritum skálda.
Hann yrkir jöfnum höndum
háttbundið og í frjálsu formi.
64 blaðsíður.
Almenna bókafélagið hf.
ISBN 9979-4-0131-1
Verð: 1.780 kr.
í ANDÓFINU
Pólsk nútímaljóð
Þýðing: Geirlaugur
Magnússon
Hér birtist á íslensku úrval
í ANDÓFINU
pólsk núUmíiljóð
Ijóða eftir mörg helstu skáld
Pólverja á þessari öld.
„Pólsk Ijóðlist minnir um
margt á bronsmynd sem fell-
ir dimman skugga á malar-
stíg í leyndum garði; kraft-
mikil og dulúðug í senn; vitn-
isburður sem grimmd styrj-
alda og harðstjóra hefir ekki
tekist að má burt,“ segir á
baksíðu. Þýðingar Geirlaugs
Magnússonar eru verk
skálds, meitlaðar og áræðn-
ar, ávallt með sínum sér-
stæða tón.
74 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
ISBN 9979-50-043-3
Verð: 1.690 kr.
IREGNBORG
HLJÓÐRA HÚSA
Gunnar Hersveinn
í fyrsta Ijóðinu er mælandinn
staddur í málverki. Hann
grípur pensilinn af forviða
málara og skapar myndljóð
55