Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Side 81
Bœkur almenns efnis
unni í Stokkhólmi. Bókin birt-
ist nú í fyrsta skipti Ijósprent-
uð með stafréttum texta
hverrar síðu í sömu opnu
sem hollenska fræðikonan
dr. Andrea de Leeuw van
Weenen hefur búið til prent-
unar. Hún ritar jafnframt inn-
gang á ensku um handritið
sjálft, birtir skrár um erlendar
fyrirmyndir einstakra prédik-
ana og gerir grein fyrir ís-
lenskum búningi textans.
623 blaðsíður.
Stofnun Árna
Magnússonar á íslandi.
ISBN 9979-819-14-6
Verð: 28.500 kr.
TÚLKUN
HEIÐARVÍGA SÖGU
Studia Islandica
íslensk fræði 50
Bjarni Guðnason
Nýstárleg túlkun merkrar
íslendinga sögu og róttækt
endurmat á hugmyndum um
aldur hennar.
Bókmenntafræðistofnun
Háskóla íslands.
282 blaðsíður.
ISBN 9979-9011-2-8
Verð: 2.450 kr.
TVÍRÆÐUR (1966-1992)
Þorgeir Þorgeirson
Hárbeitt orðræða um hug-
myndir sem máli skipta.
147 blaðsíður.
Leshús.
ISBN 9979-9088-0-7
Verð: 1.672 kr.
UM VINÁTTUNA
Marcus Tullius Cicero
Þýðing: Margrét
Oddsdóttir.
Inngangur eftir
Svavar H. Svavarsson
Bókin er rituð á 1. öld f.Kr. og
er innihaldið samræða, þar
sem fjallað er um einkenni
sannrar vináttu og gildi
hennar með tilvísun til al-
mennra kennisetninga stóu-
spekinnar. Höfundurinn var
einn mesti stjórnmála- og
ræðuskörungur Rómaveldis,
auk þess var hann vel að sér
í heimspeki, lögvís og skáld
gott. Bókin er jafn mikilvæg
nútímamanninum sem Róm-
verjanum. Um vináttuna er
30. ritið í flokki Lærdómsrita
Bókmenntafélagsins] áður
hefur út komið á íslensku í
sama flokki ritið Um ellina
eftir Cicero, sem hlotið hefur
mjög góðar viðtökur. Ódýr
og vönduð vinar- og tækifær-
isgjöf.
150 blaðsíður.
Hið íslenzka
bókmenntafélag.
ISBN 9979-804-47-5
Verð: 1.690 kr.
UTANRÍKIS-
ÞJÓNUSTA ÍSLANDS
OG UTANRÍKISMÁL
Sögulegt yfirlit
Pétur J. Thorsteinsson
fv. sendiherra
Ritið, í þremur bindum, er
gefið út að tilhlutan utanríkis-
ráðuneytis í tilefni af 50 ára
afmæli utanríkisþjónustu ís-
lendinga. Fjallað er um störf
hennar og starfsmenn frá
upphafi (1940) til ársloka
1990. Mikill hluti ritsins er þó
sögulegt yfirlit um utanríkis-
mál íslands, allt frá gerð
fyrsta ríkjasamningsins 1022.
Þetta er mikilvægt rit um
sögu lands og þjóðar.
Fáir eða engir hafa gegnt
eins mörgum ábyrgðarmikl-
um stöðum í íslensku utan-
ríkisþjónustunni og höfundur
þessa mikla ritverks. Pétur J.
Thorsteinsson lót af störfum
í utanríkisþjónustunni í des-
ember 1987 eftir nær 44 ára
embættisferil.
1.460 blaðsíður.
Hið íslenzka
bókmenntafélag.
ISBN 9979-804-36-X
Verð: 13.509 kr.
VEÐUR Á ÍSLANDI
Í100ÁR
Trausti Jónsson
veðurfræðingur
Veðrið er vinsælasta um-
ræðuefni íslendinga. Oft er
sagt að elstu menn muni
ekki annað eins, en hversu
áreiðanlegt er minni elstu
manna? í þessari bók sem
Trausti Jónsson, hinn vin-
sæli veðurfræðingur, hefur
tekið saman er greint frá
veðurfari síðustu 100 ára, frá
mánuði til mánaðar. Þar er
getið um hæsta og lægsta
hita, vindátt og úrkomu, svo
eitthvað sé nefnt. Þá eru
„veðurmef auðkennd sér-
staklega, svo nú ætti ekki að
þurfa að treysta á minni eins
eða neins. Bókin er prýdd
myndum frá þeim tíma sem
fjallað er um hverju sinni.
Nauðsynleg og fræðandi
handbók fyrir alla áhuga-
menn um veður- sem sagt:
Alla íslendinga.
270 blaðsíður.
ísafold.
ISBN 9979-809-61-2
Verð: 3.490 kr.
VERÖLD
■ hft/tr /Á/tttt/x
i</o7-/m
• liiytt'tlttr i77t. {Wcm/ttfóttt'n
VERÖLD SEM ÉG VIL
Saga Kvenréttindafélags
íslands 1907-1992
Sigríður Th. Erlendsdóttir
sagnfræðingur
í bókinni er ítarlega fjallað
um aðdraganda að stofnun
Kvenréttindafélagsins og
starfsemi þess fram á þenn-
an dag. í bókinni eru um 500
myndir og hafa margar
þeirra ekki birst áður opin-
81