Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Síða 82
Bœkur almenns efnis
berlega. Hér er á ferðinni
fróðlegt heimilda- og upp-
sláttarrit þar sem við sögu
koma á annað þúsund ein-
staklingar, rit sem er ekki
einungis saga eins félags
heldur saga kvennabaráttu
heillar aldar.
Um 520 blaðsíður.
Kvenréttindafélag íslands.
ISBN 9979-9091-0-2
Verð: 5.900 kr.
VESTFIRÐIR
Hjálmar R. Bárðarson
í þessari bók er fjallað um
landslag og gróður, fuglalíf og
mannlíf á Vestfjörðum að
fornu og nýju í máli og mynd-
um. Skoðunarferðin hefst í
Breiðafjarðareyjum. Síðan er
fylgt suðurströndinni til Látra-
bjargs og Vestfirðir þræddir.
Margir áhugaverðir og sögu-
frægir staðir við ísafjarðar-
djúp eru skoðaðir og fjallað er
um sögu byggðar í Jökul-
fjörðum og á Hornströndum
og mannlífi lýst í myndum
meðan þar var ennþá bú-
skapur og sjósókn. Haldið er
áfram suður með ströndinni
og byggðinni þar lýst allt suð-
ur til Hrútafjarðar.
í bókinni eru 920 Ijósmynd-
ir, teikningar og kort, þar af
647 litmyndir, auk megintexta
og ítarlegs myndatexta.
480 blaðsíður.
Dreifing:
íslensk bókadreifing hf.
ISBN 9979-818-14-X
Verð: 7.426 kr.
i i kkistjA VíSO\
VESTLENDINGAR I
Lúðvfk Kristjánsson
í ritinu Vestlendingar er
brugðið birtu á sérstæða at-
burði í íslensku þjóðlífi á
tímabilinu 1830-1860. Þótt
vagga þeirra væri í og við
Breiðafjörð, gætti áhrifanna
skjótt um Vestfirði og síðar
með ýmsum hætti víða um
land. En meginstoð þessarar
hreyfingar fólst í aukinni
mennt og sjálfræði lands-
manna - fordæmi sem ekki
lét sig án víðtæks vitnisburð-
ar. - Allt á efni ritsins stoð í
rannsókn frumgagna og
kynntir eru náið þeir menn er
við sögu koma, en um flesta
þeirra hafði lítið verið vitað
áður.
Vestlendingar er fróðlegt
og merkilegt rit sem hlaut
framúrskarandi góðar við-
tökur er það kom fyrst fyrir
sjónir lesenda fyrir 40 árum.
Þetta er 2. útgáfa verksins.
292 blaðsíður.
Skuggsjá.
ISBN 9979-829-12-5
Verð: 2.976 kr.
VETRARVIRKI
Afmælisrit
Björns Th. Björnssonar
Þessi bók er gefin út í tilefni
af sjötugsafmæli Björns Th.
Björnssonar listfræðings og
hefur að geyma 33 ritgerðir
um myndlist eftir nemendur
hans í listasögu. Meðal ann-
ars er fjallað um SÚM, mál-
ara kreppuáranna, Salvador
Dali, glerlist, Le Corbusier og
Ijósmyndir Cartier-Bressons.
Fjöldi mynda prýðir bókina.
397 blaðsíður.
Mál og menning.
ISBN 9979-3-0458-8
Verð: 3.990 kr.
■saannBaanBi
VIÐREISNARÁRIN
Gylfi Þ. Gíslason
Bókin Viðreisnarárin er ítar-
leg og hlutlæg greinargerð
um þá ríkisstjórn sem lengst
hefur setið á íslandi - tólf ár.
Höfundurinn var ráðherra í
þessari ríkisstjórn allan tím-
ann og er því allra manna
kunnugastur því sem gerðist
bæði innan veggja Stjórnar-
ráðsins og utan jóeirra. Verk
þessarar samhentu stjórnar
höfðu svo djúp og varanleg
áhrif að þjóðfélagið breyttist,
íslenskt mannlíf skipti um
viðhorf og ásjónu.
Viðreisnarstjórnin var
samsteypustjórn Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks.
Nafnið hlaut hún af stefnu-
skrá sinni sem boðaði við-
reisn á fjölmörgum sviðum. í
viðskiptamálum var horfið frá
þriggja áratuga haftabúskap
til þess frjálsræðis sem nú
rfkir, stóriðja var hafin, ís-
lendingargengu í Fríverslun-
arsamtök Evrópu (EFTA),
lagður var grundvöllur að
framtíðarstefnu í landhelgis-
málinu, handritamálið var
leitt til lykta og þannig mætti
lengi telja.
En Viðreisnarstjórninni
heppnaðist ekki ailt sem hún
tók sér fyrir hendur og er
engin dul dregin á það í bók-
inni, enda er frásögnin bæði
hreinskilin og óhlutdræg.
Ekki fer hjá því að f þessari
bók kemur ótal margt fram
sem þeim er utan við stóðu
hefur verið ókunnugt um til
þessa.
272 blaðsíður.
Almenna bókafélagið hf.
ISBN 9979-4-0132-X
Verð: 3.593 kr.
VISKUBRUNNUR
Fegurðin, Indversk speki,
Rómversk speki
Umsjón: Kristján Árnason
og Árni Óskarsson
Spakmæli, kvæði og kvæða-
brot eftir þekkta spekinga.
Þankabrot um listina. Visku-
bjarmi frá aldagamalli menn-
ingu Indverja. Fleyguð orð
frá Rómaveldi hinu forna.
Smekklega myndskreyttar
smábækur, skrautritaðar á
vandaðan pappír.
82