Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Side 91
Ævisögur og endurminningar
ÞORSTEINN E. JÓNSSON
FLUG
MANNS
í fyrra kom út bókin Dansað í
háloftunum. Þar sagði Þor-
steinn frá æskuárum og ekki
síst frá þátttöku sinni í heim-
styrjöldinni síðari sem or-
ustuflugmanns í breska flug-
hernum. Þetta varð metsölu-
bók. Nú birtist síðara bindi
endurminninga hans, Við-
burðarík flugmannsævi. Þor-
steinn segir frá því hvernig
var umhorfs í innanlands-
fluginu þegar hann hóf störf
hjá Flugfélagi íslands í janú-
ar 1947. Svo og ýmsum æv-
intýrum sem hann lenti í á
byrjunarárum millilanda-
flugsins. Síðan frá lífi og flug-
mannsstarfi í tæp 4 ár í
belgísku Kongó, ástandinu
þar þegar nýlendan öðlaðist
sjálfstæði og varð að ríkinu
Zaire. Þá segir Þorsteinn frá
flugi á Grænlandi og örlaga-
ríku þotunámskeiði í Seattle
1967. Einnig er sagt frá
spennandi og viðburðaríkri
atburðarás í hjálparfluginu í
Biafra, og að lokum af flugi
höfundar um víða veröld
með Cargolux uns hann lét
af störfum vegna aldurs árið
1987.
Einstaklega forvitnileg og
spennandi frásögn, krydduð
kímni og hlýju. Bók full af lífi
og þrótti, - og nær yfir 40 ára
viðburðaríka flugmannsævi.
Bókin er prýdd um 150 Ijós-
myndum.
320 blaðsíður.
Setberg.
ISBN 9979-52-107-4
Verð: 3.350 kr.
ÞEGAR HUGSJÓNIR
RÆTAST
Ævi Odds á Reykjalundi
Gils Guðmundsson
Oddur Ólafsson, læknir og
alþingismaður, veiktist ungur
af berklum. Ævistarf sitt
helgaði hann öryrkjum og
þeim sem minna máttu sín í
þjóðfélaginu. Með eljusemi,
fórnfýsi og einstakri þraut-
seigju kom hann mörgu því
til leiðar sem mun verða
þjóðinni til góðs um ókomna
tíð.
Þessi bók á erindi til allra.
Þetta er bók um dreng sem
ólst upp á sauðskinnsskóm
og ætlaði að verða sjómað-
ur. Örlögin tóku í taumana
og í lok gæfuríkrar starfsævi
vann þessi síungi hugsjóna-
maður að tölvuvæddu Lottói.
Bókin lýsir ævi þessa merka
manns og er listilega sett
saman af svila hans, Gils
Guðmundssyni, þeim virta
rithöfundi.
330 blaðsíður.
ísafold.
ISBN 9979-809-64-7
Verð: 3.490 kr.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
ÞÚ GEFST ALDREI UPP,
SIGGA
Elísabet Þorgeirsdóttir
Ævisaga Sigríðar Rósu
Kristinsdóttur eftir Elísabetu
Þorgeirsdóttur blaðamann.
Sigríður Rósa sem m.a. er
kunn fyrir skelegga útvarps-
þætti sína þar sem hún segir
mönnum og málefnum um-
búðalaust til syndanna, hefur
lifað ótrúlega ævi. Það var
ekki nóg að hún sæi um hið
stóra heimili sitt á Eskifirði
heldur fékkst hún líka við út-
gerð, saumastofurekstur og
verslun og tók virkan þátt í
félagslífi og pólitík. Líf henn-
ar var sannarlega ekki alltaf
dans á rósum. Hún átti við
veikindi að stríða og þurfti
m.a. að dveljast á Vífilsstöð-
um. En það er sama á hverju
hefur gengið. Sigríður Rósa
hefur alltaf barist, alltaf stað-
ið fast á sínu og hvergi
hopað. Hún hefur aldrei gef-
ist upp.
288 blaðsíður.
Fróði h.f.
ISBN 9979-802-27-8
Verð: 3.190 kr.
ÆVISAGA HAFSTEINS
JÓHANNSSONAR
SIGLINGAKAPPA
Rúnar Ármann Arthúrsson
Hafsteinn á Eldingunni er
lífslista- og ævintýramaður
sem meðal annars vann það
afrek að sigla fyrstur manna
umhverfis hnöttinn á heima-
smíðaðri skútu án þess að
hafa nokkurs staðar viðkomu
á leiðinni. Hér er einstæðu
lífshlaupi hans og uppátækj-
um lýst á ógleymanlegan
hátt í fjörmikilli frásögn. Þetta
er saga manns sem lifir lífinu
eins og hann vill og lætur
engan segja sér fyrir verk-
um.
Iðunn.
ISBN 9979-1-0238-1
Verð: 2.980 kr.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
OBREYTT VERÐ A JOLABOKUM
Bókaútgef endur
91