Íslensk bókatíðindi - 01.12.1993, Page 97
—
Handbœkur
'-----
stöðumyndum til skýringar,
gerðar með nýrri tölvutækni.
Fögur bók sem útskýrir jafnt
einföldustu undirstöðuatriði
sem flóknari fléttur, byrjanir
og endatöfl. Yfirlit yfir heims-
meistarakeppni, Ólympíu-
skákmót og íslandsmeistara.
Birtur er fjöldi skáka með út-
skýringum og ótal skemmti-
legar skákþrautir. Þörf og
notadrjúg bók.
144 blaðsíður.
Fjölvi.
ISBN 9979-58-229-4
Verð: 2.200 kr.
SÖGUÞRÆÐIR
Handbók fyrir alla
bóka- og barnavini.
Anna Margrét Birgisdóttir
Rakinn söguþráður um 100
barna- og unglingabóka,
þýddra og frumsaminna. Efni
bókanna er lýst svo vel að
foreldrar og kennarar geta
valið hentugar bækur og
börn fengið hugmyndir að
skemmtilegu lestrarefni.
Með efnislykli bókarinnar er
hægt að velja bækur eftir
viðfangsefni svo sem skóli,
vinátta eða nýtt systkin.
Myndskreytt.
270 blaðsíður.
Lindin h.f.
ISBN 9979-9010-5-5
Verð: 2.964 kr.
UNG OG BÁLSKOTIN -
OG KUNNUM EKKERT
AÐ PASSA OKKUR
Bruckner og Rathgeber
Þýðing: Þorsteinn
Thorarensen
Ráðgjöf: Jóna Ingibjörg
Jónsdóttir
Alhliða kynfræðslubók fyrir
unga fólkið sem er að stíga
sín fyrstu skref á unaðs-
brautinni. Fjallað um allar
hliðar þessa „vandamáls"
sem auðvitað er ekkert
vandamál heldur lífið sjálft.
Bæði líkamlega hliðin, tilfinn-
ingahliðin, lostinn, hinar fé-
lagslegu aðstæður og um-
hverfi. Allt er útskýrt í léttum
tón með fyrirspurnum og
svörum og frásögnin ein-
staklega opinská og heil-
brigð. Hlutirnir nefndir sínum
réttu nöfnum, gefin leiðsögn
um getnaðarvarnir og varnir
gegn kynsjúkdómum og al-
næmi. Ómissandi ráðgjöf og
sérlega viðeigandi og falleg
gjöf til unga fólksins.
112 blaðsíður.
Fjölvi.
ISBN 9979-58-221-9
Verð: 2.250 kr.
VÍNIN í RÍKINU
Einar Thoroddsen
Sérlega aðgengileg hand-
bók fyrir þá sem vilja fara vel
með vín og kaupa það hér-
lendis. í inngangi er fjallað
almennt um vín og vín-
drykkju, vínræktarhéruð og
ýmsar siðvenjur auk hag-
nýtra ábendinga. Síðan er
fjallað um allar víntegundir
sem fást í ÁTVR auk bjórs
og sterkra drykkja, sagður á
þeim kostur og löstur og ein-
kunnir gefnar. Bókin er
skemmtilega skrifuð eins og
höfundar er von og vísa og
prýdd fjölda mynda, korta og
teikninga.
300 blaðsíður.
Mál og menning.
ISBN 9979-3-0592-4
Verð: 3.480 kr.;
verð í desember 2.440 kr.
ÓBREYTT VERÐ Á JÓLABÓKUM
Bókaútgef endur
97