Bókatíðindi - 01.12.2011, Page 201
KIRKJUR ÍSLANDS
glæsilegar, hentugar handbækur
Þjóðminjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd, Biskupsstofa
Hið íslenska bókmenntafélag
Rangárvallaprófastsdæmi
KIRKJUR ÍSLANDS er grundvallarrit um friðaðar
kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli
byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu.
Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar
ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Ritin
í þessum glæsilega bókaflokki opnar sýn inn í
menningarsögu okkar Íslendinga þar sem kirkjan
er ekki aðeins musteri trúar og tilbeiðslu, heldur
einnig sýnileg táknmynd þess besta í byggingar- og
listasögu þjóðarinnar á hverjum tíma, sprottið af
þörf mannsins fyrir tilbeiðslu til almættisins. Þetta
eru glæsilegar listaverkabækur.
Í þessu bindi er sagt frá átta kirkjum í Rangárvalla-
prófastsdæmi, sem nú er hluti af nýju Suður-
prófasts dæmi: Akureyjarkirkju, Árbæjarkirkju,
Breiðabólstaðarkirkju, Hagakirkju, Hlíðarendakirkju,
Keldnakirkju, Krosskirkju og Marteinstungukirkju.
Höfundar eru Svavar Sigmundsson, fyrrverandi
forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands,
listfræðingarnir Júlíana Gottskálksdóttir og Þóra
Kristjánsdóttir og arkitektarnir Guðmundur L.
Hafsteinsson og Hjörleifur Stefánsson.
Ritstjórar: Þorsteinn Gunnarsson og Jón Torfason.
Ritnefnd: Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður,
Herra Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands, Nikulás
Úlfar Másson forstöðumaður Húsafriðunarnefndar
og Þorsteinn Gunnarsson arkitekt, formaður.