Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 6
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Hófí er fædd
Mónika Dagný Karlsdóttir
Myndskr.: Martine Jaspers-Versluijs
Hófí litla nýtur lífsins á bóndabænum. Hún vex og
dafnar og kynnist heiminum í kringum sig. Fylgið henni
í þessu ævintýri um fjölskyldu hennar, arfleifð og sögu
Íslands.
Ævintýrin um Hófi eru innblásin af íslenska fjár-
hundinum Hólmfríði frá Kolsholti (1988 – 2003).
40 bls.
Draumsýn
B
Hreyfibækur fyrir yngstu kynslóðina
Hvað ert þú að gera?
Vikan mín!
Olivia Cosneau, Janik Coat og Bernard Duisit
Uglan er að vakna og hænan að verpa, flamigóar dansa
og glóbrystingurinn fer á flug.
Alla daga vikunnar borðum við gómsætan mat,
gulrótarsúpu, f íflasalat eða sleikipinna, alveg eins og
dýrin í bókinni.
Myndirnar hoppa upp af síðunum og koma sífellt á
óvart. Dáleiðandi fallegar franskar hreyfibækur.
12 bls.
Angústúra
B
Hvað segja dýrin í frumskóginum?
Anna Margrét Marinósdóttir og Illugi Jökulsson
Í þessari skemmtilegu hljóðbók kynnast börnin
hljóðum nokkurra helstu frumskógardýranna, allt frá
tígrisdýrum til f íla og froska. Með fylgja ljósmyndir og
fallegar sögur um dýrin. Af hverju hlær hýenan? Hvað
sögðu hin dýrin þegar þau heyrðu í páfuglinum? Af
hverju býr flóðhesturinn í vatni?
Að lesa, skoða og hlusta á þessa bók með börnunum
skapar ógleymanlegar stundir.
28 bls.
Sögur útgáfa
D
Hvernig gleðja á pabba
Jean Reagan
Þýð.: Björgvin E. Björgvinsson
Bókin fjallar um hvernig knáir krakkar geta komið
pabba sínum á óvart við hin ýmsu tækifæri. Til þess að
það heppnist sem best þarf gott hugmyndaflug, mikla
framkvæmdagleði og auga fyrir því sem á vegi verður.
Svo þarf að kunna að virkja alla í fjölskyldunni. Kímin
og kátleg „Hvernig-bók“.
28 bls.
Bókaútgáfan Björk
D
Hvolpasveitin
Hvolparnir bjarga jólunum
Þýð.: Hildigunnur Þráinsdóttir
Sleði jólasveinsins hrapar í miklum stormi á leiðinni
með jólagjafir til Ævintýraflóa.
Hvolpasveitin kemur auðvitað til bjargar. Mun
Róberti og hvolpunum takast að koma sleða jólasveins-
ins á flug áður en jólin ganga í garð?
48 bls.
Töfraland – Bókabeitan
B
Herra blýantur og litadýrð
Veróníka Björk Gunnarsdóttir
Herra Blýantur er sérfræðingur í öllum litum regnbog-
ans og honum er ekkert dýrmætara en að geta kennt
krökkum á öllum aldri um litina. Í þessari skemmti-
legu og þroskandi bók fer Herra Blýantur í gegnum
hvern lit fyrir sig og gerir það með aðstoð litalagsins og
spurninga.
28 bls.
Veróníka Björk Gunnarsdóttir
D
Hnubbi lubbi frá Rjómabúi Stubba
Lynley Dodd
Þýð.: Sólveig Sif Hreiðarsdóttir
Í fyrsta sinn kemur út á Íslandi bók um Hnubba lubba
hundinn uppátækjasama og ferfætta vini hans. Textinn
er í bundnu máli og sérstakur að því leyti að börnin
læra fljótt hvað kemur næst og fara því að taka þátt í
lestrinum. Fallega myndskreytt af höfundi.
48 bls.
Kver bókaútgáfa
D
Hnubbi lubbi: Fótur og fit hjá dýralækninum
Lynley Dodd
Þýð.: Sólveig Sif Hreiðarsdóttir
Hnubbi lubbi þarf að fara til dýralæknisins. Á bið-
stofunni eru margir sjúklingar: hundar, kettir, mýs,
fuglar, meira að segja geit og ýmsir fleiri. Lítið þarf því
til að uppi verði fótur og fit. Textinn er í bundnu máli
með myndskreytingum sem leyfa ímyndunaraflinu að
fara á flug.
48 bls.
Kver bókaútgáfa
G
Hófí
Litabók
Myndskr.: Martine Jaspers-Versluijs
Í litabókinni eru myndir úr bókunum Hófí er fædd og
Hófí eignast vini.
50 bls.
Draumsýn
D
Hófí eignast vini
Mónika Dagný Karlsdóttir
Myndskr.: Martine Jaspers-Versluijs
Hófí eignast nýja vini á bóndabænum á meðan hún
bíður eftir að fara heim til nýju fjölskyldunnar sinnar.
Lífið er spennandi og skemmtilegt í sveitinni!
Ævintýrin um Hófí eru innblásin af íslenska fjár-
hundinum Hólmfríði frá Kolsholti (1988–2003).
48 bls.
Draumsýn
6
Barnabækur MYNDSKREY T TAR