Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 16
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Silfurlykillinn
Sigrún Eldjárn
Sumarliði og Sóldís eru nýflutt í skrítið hús sem heitir
Strætó númer sjö. Pabbi fullyrðir að einu sinni hafi það
keyrt um bæinn, en hann segir líka svo margt furðulegt
um lífið í gamla daga þegar allir áttu síma og bækur
voru ennþá til. Svo birtist dularfull stelpa. Silfurlykillinn
er spennandi saga, prýdd fjölda litmynda úr furðulegri
veröld.
226 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Sígildar myndasögur – Drakúla
Russel Punter
Í þessari bók er sagt frá hinum ískyggilega Drakúla
greifa sem býr hátt í fjöllunum. Ógnþrungin spenna frá
fyrstu til síðustu blaðsíðu.
Bókin er kærkomin viðbót fyrir unga lesendur sem
hafa ekki öðlast úthald til að lesa frumtextann eftir
Bram Stoker sem bókin er byggð á.
103 bls.
Rósakot
E
Snati litli í ræningjahöndum
Holly Webb
Þýð.: Ívar Gissurarson
Snati litli er besta jólagjöf sem Emilía gat hugsað sér.
Þau verða strax óaðskiljanlegir vinir. Dag einn hverfur
Snati á meðan hún er í skólanum og enginn veit hvar
hann er niður kominn. Emilía er alveg ákveðin í að
finna fallega hvolpinn sinn – en skyldi henni takast það?
128 bls.
Nýhöfn
D
Stjáni og stríðnispúkarnir – Myrkraverur
Zanna Davidson
Stjáni reynir að halda sér vakandi til þess að verjast
skrímslunum sem búa í myrkrinu. Hvað er á seyði? Eru
skrímslin í myrkrinu raunveruleg?
Bækurnar um Stjána eru spennandi valkostur fyrir
krakka sem eru að ná góðum tökum á lestri.
80 bls.
Rósakot
E
Svarta kisa
Til hamingju með afmælið Svarta kisa
Svarta kisa fer í bað
Nick Bruel
Þýð.: Bjarki Karlsson
Bækurnar um Svörtu kisu eru bráðfyndnar og fræðandi.
Þær henta lesendum frá 7-107 ára og eru í hópi allra
vinsælustu barnabóka Bandaríkjanna. Kattareigendur
elska hinn svarta húmor sem fylgir svörtu kisu. Yfir 15
milljónir eintaka seldar um heim allan.
128 bls.
Bókafélagið
D
Ropandi Rúna
Michael Rosen
Þýð.: Jakob F. Ásgeirsson
Myndskr.: Tony Ross
Dag einn í ósköp venjulegu húsi varð ósköp venjulegri
stelpu — henni Rúnu — það á að gefa frá sér mjög
óvenjulegan ROPA. ROPA sem var svo sérstakur að
hann feykti hlutum um koll. ROPA sem var svo risa-
stór að hann fór fljótlega að skapa usla hvar sem Rúna
kom — í matsalnum, í skólanum og á skólalóðinni. Því-
líkt ROPtrúlegt leyndarmál hlaut að kvisast út. Áður en
varði var Rúna orðin ROPANDI fræg um allan heim ...
60 bls.
Ugla
D I
Rummungur ræningi
Otfried Preußler
Þýð.: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Ævintýri Kaspers og Jobba hefjast þegar Rummungur
ræningi stelur kaffikvörninni hennar ömmu. Vinirnir
tveir ætla að handsama ræningjann og endurheimta
kvörnina, en það reynist þrautin þyngri. Fyrsta bókin
af þremur um þennan óprúttna skúrk. Litprentuð
afmælisútgáfa!
115 bls.
Dimma
D
Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti
fram nýjar kenningar um eðli alheimsins
Hjörleifur Hjartarson
Teikningar: Rán Flygenring
Skarphéðinn Dungal er ekki eins og flugur eru flestar.
Hann er forvitinn, fordómalaus og gagnrýninn og
grunar að heimurinn geymi fleira en sléttuna umhverfis
borg flugnanna.
Stórskemmtileg þula með heimspekilegum undir-
tóni eftir Hjörleif Hjartarson með teikningum Ránar
Flygenring en bók þeirra Fuglar hefur slegið í gegn hjá
lesendum á öllum aldri.
72 bls.
Angústúra
D
Seiðmenn hins forna
Cressida Cowell
Þýð.: Jón St. Kristjánsson
Þegar örlagastjörnur Xars og Óskar mætast verða þau
að gleyma þrætuefnum þjóða sinna ef þau eiga að kom-
ast í hinar leyndu dýflissur Járnvirkisins. En þar byltir
sér nú eitthvað sem sofið hefur öldum saman ...
Fyrsta bókin í þriggja bóka flokki eftir metsöluhöf-
undinn Cressidu Cowell en bókaflokkur hennar AÐ
TEMJA DREKANN SINN sló rækilega í gegn og eftir
honum hafa verið gerðar bæði verðlaunakvikmyndir og
sjónvarpsþættir.
400 bls.
Angústúra
D F C
Siggi sítróna
Gunnar Helgason
Lesari: Gunnar Helgason
Stella er á leið í stóra aðgerð og kvíðir fyrir. En það er
ekki eina áhyggjuefnið: Mamma er ólétt að tvíburum
og allt gengur á afturfótunum við undirbúning brúð-
kaups þeirra pabba. Svo eru það vinirnir og Þór, kossar
og hárþvottur! Þessi stórskemmtilega bók er framhald
metsölubókanna Mamma klikk, Pabbi prófessor og
Amma best.
183 bls. / H 4:10 klst.
Forlagið – Mál og menning
16
Barnabækur SK ÁLDVERK