Bókatíðindi - 01.12.2018, Blaðsíða 25
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
E I
Formaður húsfélagsins
Friðgeir Einarsson
Maður flytur í blokkaríbúð systur sinnar á meðan
hann kemur undir sig fótunum. Þetta átti að vera tíma-
bundin ráðstöfun, en fyrr en varir er húsfélagið lent á
hans herðum. Formaður húsfélagsins fjallar um samlíf
ókunnugra, nauðsynlegt viðhald fasteigna og marg-
slungið tilfinningalíf íbúa fjölbýlishúsa.
„Óborganlega fyndin saga.“ Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kiljunni
202 bls.
Benedikt bókaútgáfa
E F I
Gatið
Yrsa Sigurðardóttor
Huldar lögreglumaður og sálfræðingurinn Freyja,
sem eru lesendum Yrsu að góðu kunn, stíga hér fram í
magnaðri glæpasögu sem talar beint inn í samtímann.
Gatið var ein söluhæsta bók ársins 2017 og hlaut mikið
lof gagnrýnenda.
381 bls.
Veröld
D F
Gríma
Benný Sif Ísleifsdóttir
Þótt Gríma Pálsdóttir búi í þorpi þar sem allt snýst
um fisk, ætlar hún sér ekki að verða sjómannskona.
Gríma hlaut nýræktarstyrk MÍB í vor þar sem segir
m.a.: „Sagan er grípandi og persónusköpun sterk...
Frásagnargleði og væntumþykja fyrir viðfangsefninu
einkenna þessa hrífandi skáldsögu.“
368 bls.
Bjartur
E
Gulur Volvó
Gunnar Randversson
Gunnar Randversson er tónlistarkennari í Reykjavík.
Hann hefur gefið út fjórar ljóðabækur. Í þessari bók
sýnir hann á sér nýja hlið með átta prósatextum þar sem
dauðinn kemur við sögu á einn eða annan hátt.
60 bls.
Tindur
D
Ég hef séð svona áður
Friðgeir Einarsson
Ferðalangur leitar að húfu með nafni bæjarins sem
hann er staddur í. Sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum
fer á ráðstefnu sem hún á ekki erindi á. Aðfluttur Reyk-
víkingur losar sig við byssu. Tólf nýjar smásögur eftir
höfund smásagnasafnsins Takk fyrir að láta mig vita og
skáldsögunnar Formaður húsfélagsins sem báðar hlutu
lofsamlegar viðtökur gagnrýnenda.
168 bls.
Benedikt bókaútgáfa
C
Ferðin – Hjartablóð
Sandra B. Clausen
Magda reynir allt til að komast aftur heim til síns heitt-
elskaða Ara. Með viðkomu á ókunnum eyjum á miðju
hafi virðist ferðin engan endi taka. En því nær sem hún
færist heimahögunum því meira efast hún um að geta
gengið að sama lífinu aftur. Mun Ari bíða hennar eftir
allan þennan tíma?
Ferðin er glæný bók í seríunni Hjartablóð og er sjálf-
stætt framhald bókanna Fjötrar og Flóttinn. Hún er
aðeins fáanleg sem hljóðbók fyrir jólin.
/ H
Storytel
E I
Flateyjargáta
Viktor Arnar Ingólfsson
Lík finnst á eyju á Breiðafirði. Rannsóknin vindur upp
á sig og teygir anga sína víða. Eyjarskeggjar búa margir
yfir leyndarmálum sem dregin eru fram í dagsljósið. Og
sjálf Flateyjarbók gegnir lykilhlutverki ... Flateyjargáta
er ein þekktasta spennusaga Viktors Arnars og komst
meðal annars á metsölulista í Þýskalandi og víðar. Nú
hefur verið gerð sjónvarpsþáttaröð eftir bókinni.
284 bls.
Forlagið – Mál og menning
E F
Fléttubönd
Stefán Sturla
Barnslík finnst á förnum vegi og óvæntir hlutir koma í
ljós við rannsókn málsins og við sögu koma vægast sagt
vafasamir starfshættir tiltekinnar bílaleigu. Fléttubönd
er önnur bókin í þríleiknum um Lísu lögreglukonu og
aðstoðarfólk hennar, framhald af Fuglaskoðaranum
(2017) en annars sjálfstæð frásögn.
204 bls.
Ormstunga
25
Skáldverk ÍSLENSK