Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 30

Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 30
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I EndurútgáfaB Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 D Ritgerð mín um sársaukann Eiríkur Guðmundsson Ástarsaga um fölar minningar, um kynslóðir sem bugast og neyðast til að játa uppgjöf sína, harmleikur sem ekki verður færður í orð. Sársauki sem er rýtingur í hjarta okkar allra. En þessi ritgerð er líka ein lítil, græn rós. Ritgerð mín um sársaukann er fimmta skáldsaga Eiríks sem er landskunnur þáttastjórnandi á Rás 1. 270 bls. Benedikt bókaútgáfa E F I Rof Ragnar Jónasson Árið 1955 flytja tvenn ung hjón til Héðinsfjarðar sem farinn er í eyði. Önnur kvennanna deyr með dular- fullum hætti. Hálfri öld síðar finnst gömul ljósmynd sem bendir til þess að hjónin hafi ekki verið ein í firð- inum. „Bækur Ragnars hafa blásið nýju lífi í norrænu glæpasöguna.“ Sunday Express 312 bls. Veröld E I Saga Ástu Hvert fer maður ef það er engin leið út úr heiminum? Jón Kalmann Stefánsson Öll fæðumst við nafnlaus en erum mjög fljótlega nefnd svo það verði ögn erfiðara fyrir dauðann að sækja okkur. Foreldrar Ástu völdu nafnið meðan hún var enn í móðurkviði. Nú liggur Sigvaldi faðir hennar á steyptri stétt – af hverju liggur hann þar? – og saga fjöl- skyldunnar rennur um huga hans. Þetta er saga Ástu, saga um ást í ólíkum myndum, íslenska sveit, skáldskap og menntunarþrá. 431 bls. Benedikt bókaútgáfa E F I Sakramentið Ólafur Jóhann Ólafsson Sakramentið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson var ein af met- sölubókum ársins 2017 og hlaut einróma lof. „Frábær- lega teiknaður karakter … Minnisstæðasta sem ég hef lesið í þessu flóði. … Verður ekki toppað. … Fantagóð bók.“ Þorgeir Tryggvasvon, Kiljunni 294 bls. Veröld E F Samfeðra Steinunn G. Helgadóttir Þegar móðir Janusar deyr kemst hann að því að hann á ellefu hálfsystkini á svipuðu reki sem hann hefur aldrei hitt. Hann leggur upp í hringferð um landið til að kynnast þeim – en hvernig bregðast þau við því að hitta bróðurinn? Listilega spunnin saga í gráglettnum stíl, eftir höfund sem hlotið hefur Fjöruverðlaunin og fleiri viðurkenningar fyrir verk sín. 271 bls. Forlagið – JPV útgáfa G Ólandssaga Eiríkur Laxdal Bókin vísar á Evrópusögu víkingatímans með skáld- legum frásögnum af átökum konungaætta og forynja, einkum trölla, og varpar með þeim hætti ljósi á sálar- líf persónanna. Höfundur er kunnur fyrir stíl sinn og fjarstæðuhúmor í anda síðustu ára. Eftir ummerkjum er bókin brautryðjandaverk en hefur verið fáum kunn í 250 ár. Kver fylgir með skýringum og ættakort. Fæst á Háskólatorgi og í Eymundsson, Austurstræti. 460 bls. Sagnasmiðjan E F Óvelkomni maðurinn Jónína Leósdóttir Óvelkomni maðurinn er þriðja sagan um eftirlaunaþeg- ann Eddu sem leysir flókin glæpamál á milli þess sem hún gerir sitt besta sem mamma og amma. Hér fellur þekktur athafnamaður fram af svölum við Birkimel og sömu nótt kveikir grandvar snyrtifræðingur í íbúð sinni. Bæði málin tengjast Eddu og hún getur ekki annað en grennslast aðeins fyrir um þau. „Edda er frábær karakt- er og allt galleríið í kringum hana er skemmtilegt.“ ÞT/ Kiljan 296 bls. Forlagið – Mál og menning D Piltur og stúlka – afmælisútgáfa Jón Thoroddsen Í tilefni af 200 ára afmæli og 150 ára ártíð Jóns Thor- oddsen er frumgerð sögunnar um Pilt og stúlku nú gefin út. Þetta er fyrsta endurprentun upprunalegu útgáfunnar frá 1850 en skáldið breytti sögunni við gerð 2. útgáfu. Már Jónsson bjó til prentunar og ritar for- mála. 308 bls. Bókaútgáfan Sæmundur G Put your little hand in mine Hugleikur Dagsson Splunkuný myndasaga eftir Hugleik Dagsson, innblásin af kvikmyndinni Groundhog Day. Myndasagan var upphaflega skyggnusýning á Listahátíð 2018 til heiðurs aðalleikara myndarinnar, Bill Murray, en kemur nú loks út á bók. 112 bls. Forlagið – Ókeibæ C Refurinn Sólveig Pálsdóttir Lesari: Sólveig Pálsdóttir Guðgeir starfar tímabundið sem öryggisvörður á Höfn í Hornafirði á meðan hann jafnar sig á áföllum í starfi og einkalífi. Forvitni hans er vakin og hann dregst inn í óvænta atburðarás þegar ung erlend kona hverfur spor- laust. Inni í Lóni býr kona með fullorðnum syni sínum. Hvaða óhugnaður býr í einangruninni? Frábær hljóðbók sem nýtur sín í einstökum lestri höfundar. H 9:03 klst. Storytel 30 Skáldverk ÍSLENSK
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.