Bókatíðindi - 01.12.2018, Side 51
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Lífssporin mín
Erla Jónsdóttir
Lífssporin mín heitir sjálfsævisaga Erlu Jónsdóttur, fyrr-
verandi forstöðumanns Bókasafns Garðabæjar. Erla
segir m.a. frá uppvextinum á Akureyri, námi í M.A.,
Akureyrarveikinni, blaðamennsku á DV, dvöl í Svíþjóð,
skilnaði og baráttunni við að læra að lifa ein og hvernig
hún um síðir fann ástina að nýju. Fróðleg og hrífandi
frásögn.
260 bls.
Almenna bókafélagið
D
Myndir á háalofti
Sigríður Svana Pétursdóttir
Hér segir frá ævi listamannsins og vélstjórans Guð-
mundar Víborg Jónatanssonar og fjölskyldu hans á
Íslandi og í Vesturheimi.
140 bls.
Urður bókafélag
D F
Níu líf
Gísla Steingrímssonar ævintýramanns úr Eyjum
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Það er vægast sagt ótrúlegt að einn og sami maðurinn
skuli hafa lifað af hvert sjóslysið á fætur öðru og lent í
fjölmörgum háskalegum mannraunum um heim allan.
Saga Eyjapeyjans Gísla Steingrímssonar sýnir og sannar
að veruleikinn getur verið lygilegri en nokkur skáld-
skapur.
312 bls.
Veröld
C
Nú – nú, óskráð saga
Steinþór Þórðarson segir frá
Umsj.: Stefán Jónsson
Árin 1969–1970 mælti Steinþór á Hala minningar sínar
af munni fram í Ríkisútvarpinu. Steinþór var bróðir
Þórbergs rithöfundar eins og kunnugt er. Þeir sem
hlustuðu á frásagnir hans muna þær í hillingum, svo vel
sagði hann frá og orðfærið var svo sérstakt að unun var
á að hlýða, enda urðu þættirnir fádæma vinsælir. Hér er
ómetanleg heimild um samtíma hans og lifandi sagna-
hefð. Gefið út með góðfúslegu leyfi RÚV.
H 12:35 klst.
Hljóðbók.is
D F
Hundakæti
Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881–1884
Formáli: Þorsteinn Vilhjálmsson
Dagbækur Ólafs Davíðssonar eru einstök heimild um
líf og hugsunarhátt ungra íslenskra menntamanna á
síðasta fjórðungi 19. aldar. Ólafur lýsir meðal annars
svallveislum skólasveina, segir kjaftasögur úr Reykja-
víkurlífinu og fjallar afar opinskátt um eigin tilfinningar
– ekki síst til skólabróður síns. Dagbækurnar voru áður
gefnar út 1955 en þá ritskoðaðar; nú er ekkert dregið
undan.
224 bls.
Forlagið – Mál og menning
D
Jón Gunnarsson – Ævisaga
Jakob F. Ásgeirsson
Fáir menn hafa markað jafn djúp spor í atvinnusögu
Íslendinga á tuttugustu öld og Jón Gunnarsson, hún-
vetnski sveitastrákurinn sem lauk verkfræðiprófi frá
MIT árið 1930. Hann var framkvæmdastjóri SR á þeim
árum þegar síldarvinnsla var mikilvægasti útflutn-
ingsatvinnuvegur landsmanna. Síðar byggði hann upp
stærsta fyrirtæki Íslendinga í útlöndum, Coldwater Sea-
food Corporation, og skapaði íslenskum sjávarafurðum
nafn á stærsta markaði heims.
Þungvæg ævisaga um einstakan afreksmann.
400 bls.
Ugla
E
Katrín mikla
Jón Þ. Þór
Saga Katrínar miklu keisarainnu í Rússlandi er ævintýri
líkust. Hér er saga hennar rakin frá fæðingu, sagt frá
valdatöku hennar árið 1762 og ævintýralegum valdaferli
allt til dauðadags árið 1796.
239 bls.
Urður bókafélag
D
Kennedybræður
Óskar Þór Halldórsson
Þeir hafa verið kenndir við Kennedy, bræðurnir fimm
frá Akureyri, Baldur, Vilhelm, Birgir, Skúli og Eyjólfur.
Þrír þeirra stofnuðu stærstu bílaleigu landsins og hinir
tveir hafa líka starfað þar. Þetta er saga framkvæmda-
manna og frumkvöðla sem einnig hafa látið til sín taka
í íþróttum og félagsmálum. Í bókinni eru um 300 ljós-
myndir, margar áður óbirtar.
368 bls.
Almenna bókafélagið
51
Ævisögur og endurminningar