Bókatíðindi - 01.12.2018, Page 65
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D
Norðlingabók I-II
Úr íslenzku þjóðlífi
Hannes Pétursson
Hannes Pétursson er eitt helsta skáld þjóðarinnar.
Norðlingabók er safn þjóðlegra sagnaþátta hans þar
sem skáldið og fræðimaðurinn glæðir minnisverðar
frásagnir úr heimildum og sögnum nýju lífi með
orðsnilld sinni og stílfimi.
876 bls.
Bjartur
D
Norrænu goðin
Johan Egerkrans
Þýð.: Sigurður Þór Salvarsson
Norrænu goðin í algerlega nýju ljósi!
Hér er komin bók um norrænu goðin og sögurnar
í kringum þau. Gullfallegar myndskreytingarnar í
bókinni gæða goðin, gyðjurnar, dísirnar, jötnana, vanina
og allan Ásgarð óvæntu og heillandi lífi.
Þessi bók verður að vera til á hverju heimili.
160 bls.
Drápa
G F
Núvitund
Hagnýt leiðsögn til að finna frið í hamstola heimi
Mark Williams og Danny Penman
Þýð.: Guðni Kolbeinsson
Bók sem kennir einfalda aðferð til slökunar og
hugleiðslu, með æfingum til að rjúfa vítahring kvíða
og streitu og öðlast lífsgleði, vellíðan og kjark. Gagnleg
fyrir alla sem finnst erfitt að standa undir kröfum
nútímans um athygli og árangur. Það þarf aðeins fáeinar
mínútur á dag til ná betri stjórn á lífinu og öðlast innri
ró.
287 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
F
Milli mála 2017
Ritstj.: Gísli Magnússon og Þórhallur Eyþórsson
Milli mála – tímarit um erlend tungumál og menn-
ingu er gefið út af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum. Þar birtast ritrýndar fræði-
greinar um tungumál og menningu, þýðingar og viðtöl.
Tímaritið er aðgengilegt í opnum aðgangi á: http://
millimala.hi.is/is/forsida/ og https://ojs.hi.is/millimala
237 bls.
Háskólaútgáfan
F
Milli mála 2018
Ritstj.: Ásdís R. Magnúsdóttir og Rebekka Þráinsdóttir
Milli mála – tímarit um erlend tungumál og menn-
ingu er gefið út af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum. Þar birtast ritrýndar fræði-
greinar um tungumál og menningu, þýðingar og viðtöl.
Tímaritið er aðgengilegt í opnum aðgangi á: http://
millimala.hi.is/is/forsida/ og https://ojs.hi.is/millimala
200 bls.
Háskólaútgáfan
D
Mosar á Íslandi
Ágúst H. Bjarnason
Í bókinni eru greiningarlyklar að öllum tegundum
mosa, sem vaxa á Íslandi. Fjallað er um gerð og bygg-
ingu þeirra, skiptingu í blaðmosa, flatmosa og horn-
mosa, svo og hvernig standa skal að söfnun, þurrkun og
nafngreiningu á mosum. Nánari lýsingar, teikningar og
ljósmyndir eru af 230 tegundum af rúmlega 600, sem
getið er um.
367 bls.
Ágúst H. Bjarnason
G
Myndir af þjóð
Íslendingar 1918–2018
Svava Jónsdóttir
Myndir: Friðþjófur Helgason
Ísland varð fullvalda ríki árið 1918. Í þessari bók eru
myndir af Íslendingum sem fæðst hafa á þessum tíma
– frá 1918 til 2018. Einn fyrir hvert ár. Íslendingarnir
svara jafnframt einni spurningu: Hvað er Ísland í huga
þínum? Þá eru í bókinni landslagsmyndir sem teknar
hafa verið vetur, sumar, vor og haust.
Texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku.
Ljósmyndir tók Friðþjófur Helgason.
280 bls.
Tindur
65
Fræði og bækur almenns efnis