Bókatíðindi - 01.12.2018, Qupperneq 67
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
D I
Siðfræði Níkomakkosar
Aristóteles
Þýð.: Svavar Hrafn Svavarsson
Eitt merkasta heimspekirit sögunnar, grundvallarrit í
siðfræði, sem fjallar öðru fremur um dyggðina. Ritinu
fylgir ítarlegur inngangur þar sem m.a. er greint frá ævi,
ritum og kenningum Aristótelesar. Tvö bindi í öskju.
677 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
G
Sigraðu sjálfan þig
Þriggja vikna áskorun fyrir venjulegt fólk sem vill meira
Ingvar Jónsson
Einstök bók sem getur liðsinnt öllum þeim sem hafa
hug á að brjótast úr fari vanans, stefna hærra og sækja
lengra – hvort heldur er í starfi eða einkalífi. Byggt er á
hugmyndafræði markþjálfunar og unnið með fjölmörg
verkfæri sem auðvelda lesandanum að ná markmiðum
sínum og sigra sjálfan sig.
199 bls.
Forlagið – Vaka-Helgafell
G
Sigurtunga
Vesturíslenskt mál og menning
Ritstj.: Höskuldur Þráinsson, Birna Arnbjörnsdóttir
og Úlfar Bragason
Safn greina eftir 20 höfunda. Þær tengjast nýrri
rannsókn á máli og menningarlegri sjálfsmynd fólks
af íslenskum ættum í Vesturheimi og fjalla um sögu
vesturfaranna, bókmenntir og málþróun vestra.
Forseti Íslands skrifar formálsorð.
320 bls.
Háskólaútgáfan
E
Safn til íslenskrar bókmenntasögu
Jón Ólafsson úr Grunnavík
Ritstj.: Svanhildur Óskarsdóttir
Inng.: Guðrún Ingólfsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir
Í bókmenntasögu Jóns Ólafssonar kynnast lesendur
hugmyndum 18. aldar manna um bókmenntir og fá
upplýsingar um fleiri en 100 íslenska fræðimenn, skáld
og rithöfunda. Enn fremur er hér í fyrsta sinn fjallað um
íslenskar skáldkonur. Bókmenntasaga Jóns hefur ekki
áður komið út á prenti.
278 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
G
Saga
Tímarit Sögufélags LVI: 1 2018 og LVI: 2 2018
Ritstj.: Erla Hulda Halldórsdóttir og Vilhelm Vilhelmsson
Tímaritið Saga kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni
þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins
í víðum skilningi. Þar birtast m.a. greinar, viðtöl og
umfjallanir um bækur, sýningar, heimildamyndir og
kvikmyndir. Ómissandi öllum þeim sem áhuga hafa á
sögu Íslands.
272/216 bls.
Sögufélag
G
Samningatækni
Aðalsteinn Leifsson
Samningaviðræður eru hluti af daglegu lífi fólks, hvort
sem er í starfi, vegna persónulegra fjármála eða í sam-
skiptum við fjölskyldu og vini. Í þessari bók gefur Aðal-
steinn Leifsson hagnýtar ráðleggingar til að hjálpa þér
að ná árangri hvort sem þú semur fyrir þig, fjölskylduna
eða fyrirtækið.
234 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
E
Sanntrúaði villutrúarmaðurinn
og aðrar ómögulegar sögur
Peter Rollins
Þýð.: Þorvaldur Víðisson
Í þessari grípandi, en jafnframt ögrandi bók kynnir
Peter Rollins trúarsýn á Guð sem er óháð stofnunum
kirkjunnar. Hörð gagnrýni hans á trúarbrögð, sem gæti
vakið undrun, er knúin áfram af djúpri og ævarandi
ást á því hvað það merkir raunverulega að fylgja Jesú.
Þessi bók vekur margar áleitnar spurningar. Dæmisögur
þessarar bókar eiga fyrst og fremst að breyta hjarta-
lagi okkar, segir höfundurinn, ekki hugmyndum okkar.
Nánar má kynnast höfundi á www.peterrollins.net
160 bls.
Skálholtsútgáfan
D
Segulbönd Iðunnar
Ritstj.: Rósa Þorsteinsdóttir
Bók og fjórir geisladiskar með 160 kvæðalögum úr
segulbandasafni Kvæðamannafélagsins Iðunnar sem
nú er varðveitt á Árnastofnun. Með hverju lagi eru
prentaðar nótur og vísur. Í bókinni eru einnig greinar
sem tengjast efninu, yfirlit yfir bragarhætti rímna og
upplýsingar um kvæðafólkið, vísnahöfunda og þau sem
stemmurnar eru kenndar við.
294 bls.
Kvæðamannafélagið Iðunn og
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
67
Fræði og bækur almenns efnis