Bókatíðindi - 01.12.2018, Side 71
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8
E
Þjónn verður leiðtogi
Robert K. Greenleaf
Þýð.: Róbert Jack
Í bókinni lýsir höfundurinn grunnhugmyndum sínum
um þjónandi forystu, veitir innsýn í hugmyndafræðina
og varpar fram dæmum sem sýna hvernig þjónandi for-
ysta birtist í samfélaginu og í daglegum störfum stjórn-
enda og leiðtoga. Þekkingarsetur um þjónandi forystu
gefur bókina út í samstarfi við IÐNÚ.
105 bls.
IÐNÚ útgáfa
D F
Þrautgóðir á raunastund
1950–1975
Steinar J. Lúðvíksson
Á árunum 1950–1975 unnu björgunarmenn við
strendur Íslands mörg frækileg afrek – en engu að síður
fórst fjöldi sjómanna á þessum árum. Hér er fjallað um
58 hrikaleg sjóslys frá þessu tímabili. Frásagnirnar eru
margar hverjar í senn skelfilegar og stórbrotnar.
454 bls.
Veröld
D
Ævintýri í Austurvegi
Ísland á HM 2018
Skapti Hallgrímsson
Íslendingar stigu á stærsta svið knattspyrnunnar í fyrsta
skipti þegar þeir tóku þátt í lokakeppni heimsmeistara-
mótsins. Heimsbyggðin hreifst af frækinni frammistöðu
strákanna okkar, fulltrúa langfámennustu þjóðar sem
nokkru sinni hefur verið með á HM. Í þessari frábæru,
ríkulega myndskreyttu bók segir Skapti Hallgrímsson
(blaðamaður á Morgunblaðinu í 40 ár) á persónulegan
hátt frá þátttöku Íslendinga; ævintýri sem lengi verður í
minnum haft.
192 bls.
Tindur
D
Víkingur
Sögubrot af aflaskipi og skipverjum
Haraldur Bjarnason
Togarinn Víkingur AK-100 kom nýsmíðaður til Akra-
ness frá Þýskalandi árið 1960. Skipinu var síðar breytt
í nótaskip og var eitt aflahæsta skip íslenska flotans í
áratugi. Í bókinni er fjallað um aðdragandann að smíði
skipsins og nokkrir af skipverjunum segja sögu þess í
rúma hálfa öld. Bókin er ríkulega myndskreytt og í raun
hluti af útgerðarsögu landsmanna síðustu áratugina.
157 bls.
Bókaútgáfan Hólar
D
Þankar við slaghörpuna
Jónas Ingimundarson
Íslenska einsöngslagið, tónlistarskólarnir, flutningur
tónlistar og tónlistarhús, merkir tónlistarmenn sem
hafa orðið á vegi höfundar hér heima og erlendis, – um
allt þetta og miklu fleira má lesa í þessum stórfróðlegu
og vönduðu pistlum.
307 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
G
Þetta breytir öllu: kapítalisminn
gegn loftslaginu
Naomi Klein
Þýð.: Jóhannes Ólafsson
Loftslagsbreytingar eru ekki álitamál. Þær eru lokavið-
vörun til siðmenningarinnar. Kröftugur boðskapur sem
fluttur er með eldum, flóðum, þurrkum og útdauðum
tegundum um að við þurfum algjörlega nýtt efnahags-
kerfi og nýja leið til þess að deila þessari plánetu. Hér er
á ferðinni aðgengileg bók sem sannarlega opnar augu
lesenda.
444 bls.
Salka / Útgáfuhúsið Verðandi
G F
Þjáningarfrelsið
Óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla
Auður Jónsdóttir, Bára Huld Beck og Steinunn
Stefánsdóttir
Flestir eru sammála um mikilvægi fjölmiðla en samt
blasir við að íslenskir fjölmiðlar eiga erfitt uppdráttar.
Þessi bók geymir skoðanir og hugleiðingar fimmtíu
manns úr faginu á þessu mikilvæga málefni. Hér er for-
tíðin skoðuð, samtímanum lýst og varpað fram stórum
spurningum sem verða vonandi efni í frjóa umræðu.
Höfundarnir þrír hafa allir stundað skrif og blaða-
mennsku.
456 bls.
Forlagið – Mál og menning
D C
Hljóðbók frá Storytel
Þjóðhöfðingar Íslands
frá upphafi til okkar daga
Vera Illugadóttir
Vera Illugadóttir hefur á síðustu misserum slegið í gegn
með útvarpsþætti sína Í ljósi sögunnar þar sem hún
segir stórmerkar sögur úr fortíð sem samtíð. Í þessari
bráðskemmtilegu bók varpar hún fróðlegu og fjörlegu
ljósi á þjóðhöfðingja Íslands allt frá Hákoni gamla til
Guðna Th. Jóhannessonar. Hverjir voru allir þessir
þjóðhöfðingjar fortíðarinnar, hver voru afrek þeirra og
skandalar?
Bókin fæst einnig sem hljóðbók. Lesari Vera
Illugadóttir.
296 bls. / H
Sögur útgáfa
71
Fræði og bækur almenns efnis
24. OG 25. NÓVEMBER Í HÖRPU