Bókatíðindi - 01.12.2018, Síða 83
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 8 A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa I Endurútgáfa
Kæra bókaþjóð,
E nn á ný færum við ykkur brakandi fersk Bókatíðindi inn um
bréfalúguna með upplýsingum um útgáfubækur ársins. Því
fylgir ávallt mikil eftirvænting þegar ný Bókatíðindi koma úr
prentun enda gefur blaðið glögga mynd af útgáfuárinu í heild sinni.
Þrátt fyrir erfið rekstrarskilyrði í bókaútgáfu undanfarin ár þá kemur
það ánægjulega á óvart að sjá hversu úrvalið og fjölbreytnin er mikil í
ár. Fjöldi nýrra titla eykst lítillega frá síðasta ári og um 30% aukning er í
útgáfu bæði hljóð- og rafbóka. Þannig svara útgefendur kröfum
lesenda um aukið val á milli útgáfuforma. Af einstökum flokkum bóka
þá fjölgar nýjum íslenskum skáldverkum mest eða um 15% á milli ára.
Þá fjölgar barna- og ungmennabókum um ríflega 11% þegar litið er til
fjölda titla. Fjölgun hljóð- og rafbóka er einnig mest í þessum flokkum.
Nú er sá árstími fram undan þegar við getum með sanni kallað okkur
bókaþjóð því staða bókarinnar á íslenskum jólagjafamarkaði er enn
afar sterk. Samkvæmt árlegri könnun sem Zenter gerði fyrir Félag
íslenskra bókaútgefenda eftir jólin í fyrra þá fengu tæplega 60% lands-
manna eina bók eða fleiri í jólagjöf og ríflega 70% svarenda keyptu
bækur til jólagjafa. Ég leyfi mér að fullyrða að svo hátt hlutfall er ein-
stakt í heiminum. En það er ekki nóg að gefa út margar bækur og
kaupa þær til jólagjafa. Við þurfum líka að lesa þær. Við þurfum að tala
meira um bækur, rétta börnum bækur og lesa fyrir þau, hlusta á fleiri
bækur – gefa þær og þiggja. Það byrjar allt hjá á okkur sjálfum. Finnum
tíma til að njóta góðra bóka.
Gleðileg bókajól!
Heiðar Ingi Svansson,
formaður Félags íslenskra bókaútgefenda
Efnisyfirlit
Barna- og ungmennabækur
Myndskreyttar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
Skáldverk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Ungmennabækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 20
Skáld verk
Íslensk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 23
Þýdd . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 33
Ljóð og leikrit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 42
Listir og ljósmyndir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 46
Saga, ættfræði og héraðslýsingar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 48
Ævi sög ur og end ur minn ing ar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 49
Matur og drykkur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 53
Fræði og bækur almenns efnis . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 55
Útivist, tómstundir og íþróttir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 72
Höf unda skrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 73
Titl askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 77
Skrá yfir raf- og hljóðbækur . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 80
Útgef end askrá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 81
Undir kápumyndum allra bóka
má nú finna tákn sem vísa til
útgáfuforms. Táknskýringar
má finna neðst á öllum
kynningarblaðsíðum.
A Gormabók
B Harðspjalda bók – allar
blaðsíður úr hörðum pappír
C Hljóðbók
D Innbundin bók – kápuspjöld
úr hörðum pappír
E Kilja
F Rafbók
G Sveigjanleg kápa – líkt og
kilja en í annarri stærð
I Endurútgefin bók
Merking tákna
í Bókatíðindum
BÓKATÍÐINDI 2018
Útgef andi: Félag íslenskra bóka út gef enda
Bar óns stíg 5
101 Reykja vík
Sími: 511 8020
Netf.: fibut@fibut.is
Vef ur: www.fibut.is
Hönn un kápu: Halldór Baldursson og Ámundi Sigurðsson
Ábm.: Benedikt Kristjánsson
Upp lag: 125.000
Umbrot, prent un Oddi,
og bók band: umhverfisvottað fyrirtæki
Dreifing: Íslandspóstur hf.
ISSN 1028-6748
24. OG 25.
FJÖLBREYTT
DAGSKRÁ
Upplestrar, spjall, leikir og
getraunir, ljúffengt smakk
og óvæntar uppákomur.
Höfundar afgreiða og
árita bækur eftir
þínum óskum.
24. OG 25. NÓVEMBER
Opið frá kl. 11.00 til 17.00 báða dagana.
Aðgangur ókeypis.
BÆKUR
FYRIR BÖRN
Undraland barnanna
verður stútfullt af
glænýjum barna- og
ungmennabókum. Þar má
gleyma stund og stað og
sökkva sér niður
í ljúfan lestur.
VELKOMIN
Á BÓKAMESSU
Í HÖRPU
2