Íslenska leiðin - 01.11.2020, Page 6
Fjölbreytt og skemmtileg þjónusta á hagstæðu verði
fyrir stúdenta við Háskóla Íslands.
- eykur lífsgæði stúdenta
Háskólatorgi, 3. hæð Sæmundargötu 4
Sími 570 0700 fs@fs.is www.fs.is
STÚDENTAGARÐAR
www.studentagardar.is
LEIKSKÓLAR STÚDENTA
www.studentakjallarinn.is
facebook.com/studentakjallarinn
www.boksala.is
facebook.com/boksalastudenta
Bókabúð allra
námsmanna
Ritföng - Gjafavörur - Kaffihús
Ávarp fráfarandi formanns
Kæru félagsmenn,
Liðið skólaár var heldur betur óvenjulegt.
Eins og við öll vitum hefur COVID-19 sett
strik í reikninginn víða og þar var skólaár
Politica engin undantekning.
Skólaárið byrjaði þó frekar venjulega
og við í fráfarandi stjórn tókum á móti
nýnemunum
okkar í Odda í ágústmánuði og áttum
frábæran dag og kvöld með þeim. Ví-
sindaferðirnar voru nánast vikulegar
og stjórnmálafræðinemar duglegir að
mæta í þær.
Svo skall mars á og hópur af ne-
mendum hélt í námsferð til Brussel.
Dagskráin fyrir vikuna var gríðarlega
spennandi og allir spenntir fyrir þeim
heimsóknum sem átti að fara í. Því
miður náðist ekki að fara í þær allar
sökum COVID en alþjóðafulltrúinn ok-
kar á mikið hrós skilið fyrir að gera þó
ferðina að ógleymanlegu ævintýri þrátt
fyrir hindranir.
Því miður varð ekki margt sem Politi-
ca gerði eftir marsmánuð og allir fas-
tir viðburðir eins og Sigmundurinn og
árshátíðin féllu um sjálft sig. Ég trúi því
þó að sú stjórn sem tekur við næsta
skólaári geri skólaárið eins gott og
hægt er með öflugu félagslífi, þrátt fy-
rir veiruna.
Þessu skólaári mun ég seint gleyma
og ég vil þakka ykkur öllum fyrir að
taka þátt í því með okkur, allavega því
sem hægt var að gera.
Hólmfríður María Böðvarsdóttir Howard,
fráfarandi formaður Politica